Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Handbók um velferð og öryggi barna í leikskólum

Handbók um velferð og öryggi barna í leikskólum ISBN 978-9935-436-42-9  2014 Mennta- og menningarmálaráðuneytið 1.útgáfa ágúst 2014 uppfærð ágúst 2015 uppfærð mars 2018 Uppfærð maí 2021 Útgefandi: Mennta- og menningarmálaráðuneytið Umsjón: Menntamálastofnun

Öryggishandbók leikskóla 4 Efnisyfirlit Efnisyfirlit 4 Öryggishandbók leikskóla 8 1 Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um leikskóla 9 2 Velferð barna og ungmenna 10 2.1 Sýn skólans á velferð 10 2.2 Forvarnir 13 2.3 Réttur barna 13 2.4 Tilkynningaskylda til barnaverndarnefnda 14 2.5 Skólabragur 14 2.6 Starf skóla gegn ofbeldi 15 2.6.1 Leikskólinn 15 2.6.2 Grunnskólinn 15 3 Netöryggi 16 4 Slysavarnir og líkamlegt öryggi 17 4.1 Forvarnir og fræðsla 17 4.1.1 Fræðsla starfsfólks um öryggismál 17 Það sem þarf að hafa í huga fyrir alla starfsmenn er meðal annars: 17 Fyrir nýja starfsmenn þarf sérstaklega að huga að: 17 4.2 Öryggisferlar og viðbragðsáætlanir 18 4.2.1 Hlutverk og ábyrgð 18 4.2.2 Reglubundnar æfingar á viðbragðsáætlunum 18 4.2.3 Tegundir viðbragðsáætlana 18 4.2.4 Grunnupplýsingar um barn vegna slysa og bráðaveikinda 18 Nauðsynlegar grunnupplýsingar um barn vegna slysa og bráðaveikinda 19 4.3 Sjúkrakassi 19 4.3.1 Notkunarreglur sjúkrakassa 19 4.3.2 Listi yfir innihald sjúkrakassa 20 5 Öryggi í námsumhverfi 21 5.1 Fyrirbyggjandi aðgerðir 21 5.1.1 Starfsmenn 21 5.1.2 Hljóðvist 21 5.1.3 Rödd og raddvernd 21 5.1.4 Matmálstímar 21 5.1.5 Heitir drykkir 22 5.1.6 Húsgögn 22

Öryggishandbók leikskóla 5 5.1.7 Hurðir, hurðapumpur og klemmuvarnir 22 5.1.8 Fataherbergi 23 5.1.9 Upplýsingatöflur 23 5.1.10 Þurrkskápar 23 5.1.11 Bekkir 23 5.1.12 Opnanleg fög 23 5.1.13 Gluggakistur 24 5.1.14 Gardínubönd 24 5.1.15 Miðstöðvarofnar, rafmagnsofnar, blöndunartæki og heitt vatn 24 5.1.16 Stigar og tröppur 24 5.1.17 Salerni, handlaugar og skiptiborðsaðstaða 24 5.1.18 Speglar og myndir 25 5.1.19 Eldhús 25 5.1.20 Eiturefni og eitraðar plöntur 25 5.1.21 Rafmagnsöryggi 25 5.1.22 Kerti og eldfim efni 25 5.1.23 Íþróttasalir/hreyfirými 26 Hafa skal í huga: 26 5.2 Námsgögn og leikföng 26 5.2.1 CE merkingar 26 5.2.2 Leikföng fyrir 0-3 ára 27 5.3 Kokhólkur 27 5.4 Nokkur atriði til athugunar við innkaup á leikföngum 27 5.4.1 Leikföng og annað að heiman 28 5.4.2 Trampólín 28 5.4.3 Holukubbar 28 5.5 Námsumhverfi úti 28 Hafa skal í huga: 28 5.5.1 Lýsing 29 5.5.2 Ljósastaurar, girðingar og hlið úr járni 29 5.5.3 Ruslaskýli, tunnur og gámar 29 5.5.4 Hjólastandar 29 5.5.5 Umferð og bílastæði við skólalóð 29 5.5.6 Göngustígar og gangstéttir 29 Niðurföll á göngustígum/gangstéttum eiga að vera 29 5.5.7 Tröppur, rampar og handrið 30 5.5.8 Hálka 30 5.5.9 Leikvallatæki 30 6 Eftirlit 31 6.1 Innra eftirlit 31 6.1.1 Eftirlit starfsmanna 31 Eftirfarandi atriði þyrfti að skoða: 32 7 Öryggi í ferðum á vegum leikskóla 33

Öryggishandbók leikskóla 6 7.1 Strætisvagna- og rútuferðir 33 7.2 Bátsferðir 33 7.3 Sundferðir 34 7.4 Akstur með börn í bílum starfsmanna 34 8 Slys 35 8.1 Að hefja skyndihjálp og sinna barni þar til sjúkrabíll kemur 35 Hafa ber í huga að: 35 8.2 Að koma ró á svæðið – Hinn slasaði gengur alltaf fyrir 35 8.3 Fyrstur á slysstað 35 8.4 Fjögur skref skyndihjálpar 36 8.5 Greiningarstig áverka 36 8.6 Hringt á sjúkrabíl og sjúkrakassi sóttur 36 8.7 Hvernig á að hringja í Neyðarlínuna - 112 36 8.8 Viðbrögð gagnvart vitnum og öðrum börnum á slysstað 37 8.9 Tilkynning til foreldra um slys á barni 37 8.9.1 Slys sem ekki eru talin lífshættuleg 38 Símtalið 38 8.9.2 Lífshættulegt ástand 38 8.10 Eftir slys 38 8.10.1 Skráning slysa í leikskólum 38 8.10.2 Hvenær á að skrá slys í leikskóla? 38 8.10.3 Að hverju þarf að gæta þegar skráð er? 39 8.10.4 Undirritun foreldra á slysaskráningarblaðið og afrit af því 39 8.10.5 Hvað er gert við slysaskráningarblöðin? 39 8.11 Lögregluskýrsla 39 8.11.1 Slys á börnum sem gera skal lögregluskýrslu um: 40 8.12 Endurskoðun öryggismála eftir slys 40 8.13 Viðtal við foreldra eftir alvarlegt slys 41 8.13.1 Foreldraráð og foreldrafélag 41 8.14 Tilkynning á slysi - Hvert ber að tilkynna? 41 8.14.1 Tilkynning til rekstraraðila 41 8.14.2 Heilbrigðiseftirlit 41 8.14.3 Tilkynningar til tryggingafélaga 42 9 Almannavarnir og eldvarnir 43 9.1 Rýming 43 9.2 Eldvarnir 44 Eftirfarandi atriði eiga að vera til staðar og í lagi: 44 9.3 Náttúruvá 44 9.3.1 Loftgæði og svifryk 44 Það sem getur leitt til aukins styrks svifryks er t.d.: 44 9.3.2 Eldingar 44 9.3.3 Fárviðri 44

Öryggishandbók leikskóla 7 9.3.4 Jökulhlaup 45 9.3.5 Flóðbylgjur 45 10 Áhugavert lesefni og viðaukar 46 10.1 Áhugavert lesefni 46 10.2 Viðaukar 46 10.3 Tillaga að gátlista fyrir deildarstjóra vegna eineltismáls 47 10.4 Tillaga að viðbrögðum og vinnuferli starfsfólks leikskóla við samskiptavanda og einelti 48 10.5 Tillaga að skráningu á úrvinnslu eineltismála 49 10.6 Grunnur að matsblaði á námi og starfi – Kennarar 50 10.7 Grunnur að matsblaði á námi og starfi - Allir starfsmenn 51 10.8 Grunnur að matsblaði á námi og starfi - Foreldrar 52 10.9 Grunnur að samtali kennara og nemenda um aðstæður í skólanum 53 10.10 Tillaga að skipulagi við undirbúning ferða á vegum leikskóla 54 10.11 Tillaga að verklagi við strætisvagnaferðir 55 10.12 Tillaga að slysaskráningarblaði fyrir leikskóla 56 10.13 Tillaga að verklagsreglum sveitarfélaga um tilkynningu til foreldra vegna alvarlegra eða lífshættulegra slysa á börnum 57 10.14 Tillaga að eyðublaði vegna grunnupplýsinga um barn vegna slysa og bráðaveikinda 58 10.15 Tillaga að gátlista um aðgerðaáætlun gegn ofbeldi, einelti og kynferðislegu áreiti 59 10.16 Viðbragðsáætlun – Viðbrögð við ógnunum, náttúruvá, smitsjúkdómum, efnaslysum og fl. 60 10.17 Viðbragðsleiðbeiningar fyrir skólastofnanir – Leiðbeiningar um viðbrögð í neyðartilvikum. 60

Öryggishandbók leikskóla 8 Öryggishandbók leikskóla Handbókin er unnin í samvinnu mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Herdísar Storgaard og Þorláks Helga Þorlákssonar með stoð í lögum um leikskóla nr. 90/2008 og reglugerð um starfsumhverfi leikskóla nr. 655/2009. Í reglugerðinni segir að sveitarstjórn skuli útbúa handbók fyrir starfsfólk leikskóla með leiðbeinandi reglum um öryggi barna og slysavarnir í leikskólum. Leiðbeiningar þessar skulu grundvallaðar á gildandi lögum og reglugerðum um öryggisskipulags- og byggingarmál og samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir leikskóla, sbr. lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Leiðbeiningar þessar skulu staðfestar af sveitarstjórn sem jafnframt skal sjá um að þær séu aðgengilegar almenningi á heimasíðu skólans eða sveitarfélagsins eða með öðrum hætti og kynntar í skólasamfélaginu. Sambandi íslenskra sveitarfélaga og menntamálaráðuneyti ber að móta leiðbeiningar um gerð slíkrar handbókar. Handbókin er mun ítarlegri en reglugerðin segir til um og er það gert til að auðvelda sveitarfélögum og skólum að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar. Handbókin er ætluð sveitarstjórnum, rekstraraðilum, skólastjórnendum, kennurum og öðrum sem starfa í leikskólum til stuðnings við gerð öryggishandbókar, öryggisáætlana og viðbragðsáætlana fyrir leikskóla. Handbókina má nýta í heild sinni eða nýta þá þætti sem henta hverju sinni. Mikilvægt er að í öryggishandbók fyrir starfsfólk leikskóla sé tæpt á öllum þeim þáttum sem koma fram í handbók þessari. Handbókin er fyrst og fremst ætluð sem uppflettirit til að auðvelda notendum að fylgja eftir þeim lögum og reglugerðum sem gilda um leikskólann og umhverfi hans. Uppsetningu handbókarinnar er ætlað að auðvelda notendum að finna upplýsingar um hina mismunandi þætti sem taka á velferð og öryggi leikskólabarna. Markmiðið með handbókinni er að setja fram á aðgengilegan hátt upplýsingar um þá þætti sem huga þarf að í daglegum rekstri og starfi leikskóla. Handbókinni er skipt í 10 meginkafla, hverjum meginkafla er síðan skipt í undirkafla til að auðvelda leit að sértækum þáttum. Meginkaflar handbókarinnar eru: 1. Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um leikskóla 2. Velferð barna og ungmenna 3. Netöryggi 4. Slysavarnir og líkamlegt öryggi 5. Öryggi í námsumhverfi 6. Eftirlit 7. Öryggi í ferðum á vegum leikskóla 8. Slys 9. Almannavarnir og eldvarnir 10. Áhugavert lesefni og viðaukar Handbókinni er ætlað að vera rammi um sameiginlega vinnu allra í skólasamfélaginu að velferð nemenda og byggir á efni sem Herdís Storgaard og Þorlákur Helgason unnu fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti. Ráðuneytið hefur falið Menntamálastofnun umsjón, vistun og uppfærslu handbókanna fyrir leikskóla og grunnskóla.

Öryggishandbók leikskóla 9 1 Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um leikskóla • Aðalnámskrá leikskóla • Barnalög nr. 76/2003 • Barnaverndarlög 80/2002 • Byggingarreglugerð nr. 112/2012 • Lög um almannavarnir nr. 82/2008 • Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 • Lög um leikskóla nr. 90/2008 • Lög um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálinn) nr. 19/2013 • Lög um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu nr. 134/1995 • Reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 • Reglugerð um mat og eftirlit í leikskólum og upplýsingaskyldu sveitarstjórna um skólahald nr. 893/2009 • Reglugerð um meðhöndlun úrgangs nr. 737/2003 • Reglugerð um notkun öryggis- og verndarbúnaðar í ökutækjum nr. 348/2007 • Reglugerð um starfsumhverfi leikskóla nr. 655/2009 • Reglugerð um öryggi leikfanga og markaðssetningu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu nr. 944/2014 • Reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim nr. 942/2002 • Reglur um skólaakstur í grunnskóla nr. 656/2009 • Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944

Öryggishandbók leikskóla 10 2 Velferð barna og ungmenna Skólinn er griðastaður barna og ungmenna og hvílir mikil ábyrgð á öllu starfsfólki skóla til að búa börnum vellíðan og öryggi í daglegu starfi. Velferð barna er sameiginlegt verkefni skóla og heimila. Það er mikilvægt að börn fái notið bernsku sinnar og eigi góðar minningar úr skóla. Þegar fjallað er um velferð nemenda er horft til þriggja þátta. Þeir eru: • Félagslegt öryggi nemenda og að þeir séu metnir út frá eigin verðleikum. • Tilfinningalegt öryggi nemenda sem finna væntumþykju annarra. • Traust þar sem nemendur átta sig á að þeir geti treyst þeim sem eru að mennta þá. Með ofbeldi er í þessari handbók átt við andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í öllum birtingarmyndum þess. Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst (Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands). Markmið laga og reglugerða um skólahald er meðal annars að tryggja að nemendum líði vel. Mikilvægt er að þeir búi við öryggi og að gagnkvæmt traust ríki í skólasamfélaginu. Kaflar tvö og þrjú eiga við um leik- og grunnskóla og er í þeim stuðst við lög, reglugerðir og aðalnámskrár fyrir bæði skólastigin. Þar sem talað er um nemanda eða barn er átt við barn eða ungmenni í leik- eða grunnskóla. 2.1 Sýn skólans á velferð Bernsku- og unglingsárin eru mikilvægt skeið í ævi hvers einstaklings og eiga skólar að leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir barna og unglinga. Skólastarfið miðar að virkri þátttöku þeirra í lýðræðissamfélagi innan skóla sem utan. Í lögum um leik- og grunnskóla eru skýrar áherslur á öryggi og velferð og hvatt er til góðs og farsæls samstarfs allra sem að skólasamfélaginu koma. Allir geta verið sammála um að nemendur eiga rétt á að eiga góðar minningar úr skóla hvort heldur er úr námi, félagslífi eða tilfinningalega. Barn sem líður vel í skóla, á góða vini og getur tekið beinan þátt í að móta góðan skóla er líklegra til að ná árangri í skóla og það hefur áhrif á skólabrag. Góður árangur barns í skóla hefur einnig áhrif á heilsufar þess. Barn sem býr við tilfinningalegt og félagslegt öryggi í skóla er líklegt til að geta metið stöðu sína og náð árangri á eigin forsendum. Samkvæmt reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, nr. 1040/2011 skulu skólar vinna sameiginlega sýn og stefnu um velferð og birta í skólanámskrá. Mikilvægt er að hvoru tveggja sé skilgreint, unnið sé að því að styrkja ímynd skólans og skapa sameiginlegan skilning meðal starfsmanna, nemenda, foreldra og grenndarsamfélagsins. Í skólasamfélaginu er lögð rækt við að vinna að almennri velferð nemenda og gegn andfélagslegri hegðun í hverju svo sem hún kann að birtast svo sem einelti, öðru ofbeldi og niðurlægingu. Ekki er til sambærileg reglugerð fyrir leikskóla en í lögum um leikskóla, nr. 90/2008 segir að meginmarkmið uppeldis og kennslu í leikskóla skuli meðal annars vera að:

Öryggishandbók leikskóla 11 • hlúa að börnum andlega, vitsmunalega og líkamlega í samræmi við þarfir hvers og eins svo að börnin fái notið bernsku sinnar • stuðla að víðsýni barna og efla siðferðisvitund þeirra • leggja grundvöll að því að börn verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi • rækta hæfileika barna til tjáningar og sköpunar í þeim tilgangi m.a. að styrkja sjálfsmynd þeirra, heilbrigðisvitund, öryggi og hæfni til mannlegra samskipta. Skólinn er, næst á eftir heimili barnsins, mikilvægasta umhverfi þess og þar mótast meðal annars félags- og tilfinningaþroski að hluta. Því er mikilvægt að skólar móti sér sýn á velferð og birti hana í skólanámskrá sinni. Hér að neðan eru talin upp nokkur atriði sem vert er að hafa til hliðsjónar við mótun heildarsýnar skóla á velferð nemenda: • Markmið um aukna velferð nemenda er samvinnuverkefni skóla og heimilis. • Skólinn skilgreini í hverju jákvæður skólabragur felst og móti leiðir til að viðhalda honum. Starfsfólk skóla, nemendur og foreldrar skulu í sameiningu leggja áherslu á að móta og viðhalda góðum starfsanda í skólanum og jákvæðum skólabrag. • Leggja skal áherslu á styrkleika barna og hæfni. Leitast skal við að vinna að fjölbreyttum viðfangsefnum og starfsháttum til að koma til móts við mismunandi námsþarfir ólíkra einstaklinga og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. • Helstu þættir heilbrigðis sem leggja þarf áherslu á eru: jákvæð sjálfsmynd, hreyfing, næring, hvíld, andleg vellíðan, góð samskipti, ábyrgð, öryggi, hreinlæti, kynheilbrigði og skilningur á eigin tilfinningum og annarra. • Skólinn skal vinna markvisst að forvörnum þar sem hugað er að félagslegri vellíðan og velferð nemenda. • Skólinn er griðastaður barna þar sem þau eiga að finna til öryggis. Hafa skal að leiðarljósi að börn og unglingar þarfnast verndar og leiðsagnar fullorðinna. • Nemendur eiga rétt á að láta skoðanir sínar í ljós í málum sem þá varða og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þeirra. • Nemendur eiga að fá tækifæri til að skiptast á skoðunum við önnur börn og fullorðna þar sem þeir finna lausnir í sameiningu og miðla málum. • Þarfir og áhugi barna ættu að vera sá grunnur sem mótar umhverfi og starfshætti skólans. Starfsfólk skóla skal grípa til viðeigandi ráðstafana ef þörf krefur þannig að öll börn fái sem best notið sín miðað við þroska og þarfir hvers og eins. • Ofbeldi, einelti og annað andfélagslegt atferli skal aldrei liðið. Skólinn skal grípa til viðeigandi ráðstafana til að uppræta slíkt atferli, koma í veg fyrir að það þróist til að bæta umhverfi nemenda. • Starfsfólk skóla ber ábyrgð á að börnum líði vel í skólanum. Í skólasamfélaginu á nemandi að fá tækifæri til að þroska og nýta hæfileika sína og njóta bernsku sinnar. Skólinn á, í samstarfi við foreldra, að kappkosta að fylgjast með og efla alhliða þroska allra barna, veita þeim hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og stuðla að öryggi þeirra og vellíðan. Samkvæmt aðalnámskrá eru starfshættir skóla og samskipti allra aðila ekki síður mikilvæg en önnur viðfangsefni til að ná markmiðum skólanna og stuðla að velferð og menntun. Starfshættir skólanna skulu mótast af umburðarlyndi og jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi og ábyrgð.

Öryggishandbók leikskóla 12 Námsárangur byggir á forsendum nemandans sjálfs, samskiptum og samkennd með vinum og félögum og samskiptum við kennara, annað starfsfólk sem og á upplifun nemandans um eigin stöðu. Æskilegt er að nemandinn taki þátt í aðgerðum til að móta vinsamlegt umhverfi í skólanum. Foreldrar eru hluti af skólasamfélaginu og er mikilvægt að traust og virðing ríki milli heimilis og skóla. Foreldrar nemenda skulu gæta hagsmuna barna sinna. Þeir skulu hafa náið samráð við starfsfólk skóla, fylgjast með skólagöngu barna sinna og veita þær upplýsingar sem kunna að skipta máli fyrir skólastarfið og velferð barnanna. Foreldrum ber að greina skólanum frá þeim þáttum sem kunna að hafa áhrif á námsframvindu, ástundun og hegðun, svo sem um vanlíðan barna sinna og áföll sem gætu haft áhrif á skólagöngu þeirra, sem og þegar breytingar verða á högum þeirra og aðstæðum. Í reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, nr. 1040/2011 segir að skólastjórnendum og kennurum beri að eiga samstarf við foreldra um hegðun, líðan og samskipti barna þeirra. Umsjónarkennarar skulu upplýsa foreldra reglulega um skólabrag og bekkjaranda og leita eftir uppbyggjandi samstarfi við foreldrahópinn um hvorutveggja. Þetta á einnig vel við um leikskólann. Skólar eiga að hafa frumkvæði að því að stuðla að góðu samstarfi heimilis og skóla með það að markmiði að tryggja farsælt skólastarf, almenna velferð og öryggi nemenda. Kennurum og öðru starfsfólki ber að sýna fjölbreyttum fjölskyldugerðum, menningu og aðstæðum skilning og virðingu. Í leikskóla á að leggja áherslu á sjálfstæði og frumkvæði og hvetja hvert barn til að taka ábyrgð á sjálfu sér. Eftirfarandi leiðarljós í aðalnámskrá leikskóla eiga að vísa leikskólum veginn í mótun leikskólastarfs um velferð. Starfsfólk leikskóla, í samráði við foreldra og börn, þarf að koma sér saman um hvernig starf leikskólans tekur mið af leiðarljósunum og skrá aðferðir og leiðir í skólanámskrá leikskólans: • Leikskóli á að vera lýðræðislegur vettvangur og lærdómssamfélag þar sem starfsfólk, foreldrar og börn eru virkir þátttakendur og hafa áhrif á ákvarðanir um málefni leikskólans. • Starfshættir leikskóla eiga að hvetja til samvinnu og samstarfs milli barna, starfsfólks, foreldra og nærsamfélags. • Leikskóli á að vera samfélag þar sem hver einstaklingur nýtur virðingar og leggur sitt af mörkum. • Leikskólastarf skal byggjast á jafnrétti, virðingu fyrir margbreytileika mannlífsins og öðrum menningarheimum. • Virða skal rétt allra sem þar dvelja, óháð kynferði, bakgrunni, aðstæðum eða getu og leitast við að koma til móts við þarfir allra. • Starfshættir leikskóla eiga að stuðla að því að börn læri að bera virðingu og umhyggju fyrir öðru fólki og þrói með sér samkennd, tillitssemi og vináttu. • Í leikskóla á að stuðla að því að börn þrói með sér jákvæða sjálfsmynd með því að virða sérstöðu og sjónarmið hvers einstaklings. Í reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, nr. 1040/2011 eru eftirfarandi markmið: Að nemendur geti notið bernsku sinnar í skólastarfi, notið hæfileika sinna og séu öruggir í öllu starfi á vegum skólans. Að stuðla að ábyrgð nemenda á eigin námi, hegðun og samskiptum með hliðsjón af aldri, þroska og aðstæðum að öðru leyti.

Öryggishandbók leikskóla 13 Að allir í skólasamfélaginu kappkosti í sameiningu að stuðla að og viðhalda góðum starfsanda og jákvæðum skólabrag, þar sem öryggi, vellíðan og heilbrigði eru leiðarljós. Að stuðla að góðu samstarfi og samráði milli foreldra og skóla um nám nemenda, hegðun og samskipti og stuðla að gagnkvæmu trausti allra aðila í skólasamfélaginu, gagnkvæmri virðingu, samábyrgð, kurteislegri framkomu og tillitssemi. Að haldið sé uppi námsaga þar sem tekið er tillit til þarfa nemenda, þroska og hæfni með áherslu á mannréttindi, jafnrétti, lýðræðisleg vinnubrögð og bann við mismunun af öllu tagi. Að hver grunnskóli setji sér skólareglur með skýrum viðbrögðum við brotum á reglunum, að úrræði og viðbrögð stuðli að jákvæðri hegðun og miði að því að rækta persónuþroska og hæfni nemenda. 2.2 Forvarnir Skólinn skal vinna markvisst að forvörnum með því að stuðla markvisst að velferð barna og farsælli skólagöngu þeirra þar sem hugað er að andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan. Fræðsla til starfsmanna, foreldra og nemenda er mikilvægur þáttur forvarna. Góð heilsa er undirstaða velfarnaðar í námi og starfi og virkrar þátttöku í samfélaginu. Heilsa er skilgreind sem líkamleg, andleg og félagsleg velferð. Líðan barns hefur áhrif á sjálfsmynd þess, hvort það hefur trú á eigin hæfni og er áhugasamt og sýnir vilja og getu til að takast á við mismunandi viðfangsefni. Daglegar athafnir í skóla eiga að stuðla að líkamlegri og andlegri vellíðan barns og góðri heilsu. Í skólum gefst tækifæri til að efla heilbrigði og stuðla markvisst að velferð og vellíðan óháð efnahag og aðstæðum á heimili nemenda. Starfsfólk skóla skal ávallt bera velferð nemenda fyrir brjósti og leggja sig fram um að tryggja öryggi, vellíðan og vinnufrið til þess að þeir geti notið skólagöngu sinnar. Almenn menntun miðar að því að efla sjálfsskilning einstaklingsins og hæfni hans til að leysa hlutverk sín í flóknu samfélagi. Hugtakið hæfni felur í sér þekkingu og leikni og er samofið siðferðislegum viðhorfum nemenda. Nemendur þurfa að vita hvað þeir kunna og hvað þeir geta og hvernig best er að beita þekkingu sinni og leikni til að hafa áhrif á umhverfi sitt og bæta það. Hæfni er þannig meira en þekking og leikni, hún felur einnig í sér viðhorf og siðferðisstyrk, tilfinningar og sköpunarmátt, félagsfærni og frumkvæði. Upplifun nemenda er mikilvægt atriði í að styrkja velferð þeirra. Það hvernig nemendur upplifa stöðu sína og gengi í skólanum hefur þar áhrif sem og ytri aðstæður eins og skólahúsnæði. Allt skiptir þetta máli og hefur mismikil áhrif á líðan nemenda. Hafa skal í huga að mælikvarði fullorðinna á þægilegu umhverfi þarf ekki að fara saman við mat barna og unglinga. Spurningalistar sem lagðir eru fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk eru leiðbeinandi um mat á líðan nemenda og beina sjónum að jákvæðum aðstæðum og þeim sem þarf að bæta. Eins geta þeir verið til stuðnings reglubundnum viðtölum við nemendur og foreldra. Tillögur að spurningalistum má finna í viðauka. 2.3 Réttur barna Allir nemendur eiga rétt á að stunda nám við sitt hæfi. Tækifærin eiga að vera jöfn óháð atgervi og aðstæðum hvers og eins. Jafnrétti til náms þýðir að nemanda eru sköpuð bestu skilyrði á hans forsendum, óháð félagslegri og námslegri stöðu. Nemendur eiga að njóta styrkleika sinna og þeim á að leiðbeina til að draga þá fram. Nemandi sem stöðugt upplifir að verða undir og ná ekki settu

Öryggishandbók leikskóla 14 marki, finnur fyrir vanlíðan og vanmætti í skóla. Leggja skal áherslu á styrkleika barna og þörf þeirra fyrir vernd og leiðsögn fullorðinna. Skólum ber að sinna forvarnarstarfi með því að stuðla markvisst að velferð barna og farsælli skólagöngu þeirra. Starfsfólk skóla skal grípa til viðeigandi ráðstafana ef þörf krefur þannig að öll börn fái notið sín sem best. Samkvæmt barnalögum, nr. 76/2003, á barn rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar, umönnunar og annarra réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og án mismununar af nokkru tagi. Óheimilt er að beita barn hvers kyns ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi. Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess. Barn á rétt á að láta skoðanir sínar í ljós í öllum málum sem það varðar og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur og þroska. Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, nr. 18/1992, segir að með hliðsjón af réttindum og skyldum foreldra eða lögráðamanna, eða annarra sem bera ábyrgð að lögum á börnum, skuldbinda aðildarríki sig til að tryggja börnum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst og skulu þau í því skyni gera allar nauðsynlegar ráðstafanir á sviði löggjafar og stjórnsýslu. Í barnaverndarlögum, nr. 80/2002, segir að allir sem hafi uppeldi og umönnun barna með höndum skuli sýna þeim virðingu og umhyggju og óheimilt er með öllu að beita börn ofbeldi eða annarri vanvirðandi háttsemi. 2.4 Tilkynningaskylda til barnaverndarnefnda Í barnaverndarlögum, nr. 80/2002, stendur að hverjum þeim sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af málefnum barna og verður í starfi sínu var við að barn búi við óviðunandi uppeldisskilyrði, verði fyrir áreitni eða ofbeldi, eða að barn stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu, sé skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart. Sérstaklega er skólastjórum, kennurum, þroskaþjálfum og öðrum þeim sem koma að málefnum barna í skólasamfélaginu skylt að fylgjast með hegðun, uppeldi og aðbúnaði barna og gera barnaverndarnefnd viðvart ef ætla má að aðstæður barns séu óviðunandi. Tilkynningaskylda gengur framar ákvæðum laga eða siðareglna um þagnarskyldu viðkomandi starfsstétta. Á vef Barnaverndarstofu má finna verklagsreglur um tilkynningaskyldu starfsmanna leik-, grunn- og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda. 2.5 Skólabragur Jákvæður skólabragur sem verndar og styrkir nemandann byggir meðal annars á þátttöku hans. Jákvætt námsumhverfi og gott skólahúsnæði stuðlar að góðum námsárangri. Þættir sem skipta máli eru meðal annars: • Hvernig er ytra umhverfi? Er skólaumhverfi bjart og hlýtt, henta aðstæður samskiptum við vini? • Hvernig er innra umhverfi? Skólabragur, samskiptamáti, áhrif nemenda, hafa nemendur komið að mótun umhverfis og aðstæðna? • Hvernig eru skilaboð frá þeim fullorðnu? Dæmi: „Þú sem nemandi skiptir máli og við viljum að þú lærir.“ • Hvernig er búið að öryggi barna? Er starfsmaður alltaf til staðar og geta nemendur treyst honum til að bregðast við og grípa inn í aðstæður?

Öryggishandbók leikskóla 15 • Hvernig er félagsstaða foreldra? Hún getur verið misjöfn og haft áhrif á samskipti heimilis og skóla. 2.6 Starf skóla gegn ofbeldi 2.6.1 Leikskólinn Í lögum og reglugerðum er ekki kveðið á um skyldur leikskóla til að móta sér stefnu um aðgerðir gegn ofbeldi. Andi laga um leikskóla og aðalnámskrá leikskóla felur þó í sér hvatningu til að leikskólar setji sér stefnu til að koma í veg fyrir og bregðast við líkamlegu, andlegu og félagslegu ofbeldi og félagslegri einangrun. Leikskólar geta nýtt sér þær tillögur sem fram koma í kaflanum hér að neðan um grunnskólann. 2.6.2 Grunnskólinn Í 7. grein reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila í skólasamfélaginu í grunnskólum, nr. 1040/2011 segir að allir skólar skuli hafa heildstæða stefnu fyrir skólann til að fyrirbyggja og bregðast við líkamlegu, andlegu og félagslegu ofbeldi og félagslegri einangrun. Skólum ber að setja sér aðgerðaáætlun gegn einelti með virkri viðbragðsáætlun til að takast á við eineltismál í skólanum. Áætlunin skal ná til allrar starfsemi og alls starfsfólks skóla og skal kveða á um skyldur þess til að vinna gegn einelti með ábyrgum og virkum hætti. Áætlunin skal ná til allra nemenda og styrkja þá til að bera virðingu hver fyrir öðrum, sýna tillitssemi og samkennd og taka afstöðu gegn einelti. Aðgerðir gegn einelti eru órjúfanlegur þáttur í að skapa nemendum öruggt umhverfi og taka til skólans í heild, einstakra námshópa og einstaklinga. Hver kennari ber ábyrgð á að framfylgja með virkum og ábyrgum hætti aðgerðaáætlun skólans gegn einelti og skólastjóri ber ábyrgð á að starfið sé samhæft. Eineltisáætlun á að vera virk í skólanum. Traust og vellíðan nemanda byggir á að honum sé ekki strítt eða hann niðurlægður á annan hátt. Nemandi á að geta treyst starfsfólki skólans til að grípa inn í aðstæður og skipta sér af sé þess þörf. Kanna þarf reglulega eðli og umfang eineltis í skólum, kynna niðurstöður og nýta þær til úrbóta. Aðgerðaáætlun gegn einelti er hluti af skólanámskrá og er kynnt sérstaklega eftir því sem þurfa þykir og skal birt opinberlega. Aðilar skólasamfélagsins (foreldrar og forráðamenn nemenda, nemandi, starfsfólk skóla, stjórnendur skóla), auk annarra aðila sem starfa með börnum í skóla-, frístunda- eða tómstundastarfi sem hefur stoð í grunnskólalögum geta óskað eftir aðstoð fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum ef ekki tekst að finna viðunandi lausn innan skóla eða sveitarfélags þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og aðkomu sérfræðiþjónustu. Ráðuneytið gefur út verklagsreglur um starfsemi fagráðsins, málsmeðferð og eftirfylgni að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Á vefsíðu Menntamálastofnunar er hægt að nálgast upplýsingar og góð ráð um einelti og þar er m.a. að finna leiðbeiningar um verkferla í eineltismálum: https://gegneinelti.is/ Einnig er mikilvægt að skólar setji sér áætlanir um viðbrögð við ofbeldi og verklagsreglur fyrir starfsfólk um tilkynningar vegna ofbeldis sem það verður vitni að eða verður áskynja um í störfum sínum. Tillaga að gátlista um aðgerðaáætlun gegn ofbeldi, einelti og kynferðislegu áreiti er í viðauka 10.15.

Öryggishandbók leikskóla 16 3 Netöryggi SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) og samtökin Heimili og skóli hafa í samvinnu við mennta- og menntamálaráðuneyti tekið saman almenn viðmið um birtingu myndefnis, meðferð upplýsinga um börn á netinu og notkun samfélagsmiðla. Viðmiðin gilda einkum um heimasíður skóla, íþróttafélaga og annarra sem koma að æskulýðs- og tómstundastarfi. Hægt er að tilkynna um ólöglegt og óviðeigandi efni á neti í gegnum ábendingahnapp Barnaheilla.

Öryggishandbók leikskóla 17 4 Slysavarnir og líkamlegt öryggi Þessi hluti handbókarinnar á við um leikskóla og er stuðst við lög, reglugerðir og aðalnámskrá. Handbókinni er meðal annars ætlað að vera leiðarvísir við gerð neyðaráætlana, fyrir leikskóla. 4.1 Forvarnir og fræðsla Allir starfsmenn leikskóla (bæði fastráðnir og lausráðnir) þurfa að kunna skyndihjálp leikskólabarna og viðhalda þeirri þekkingu með því að fara yfir og æfa reglulega viðbrögð við slysum og vá. Mikilvægt er að allir starfsmenn leikskólans kunni að bregðast við slysi á fumlausan hátt og er það á ábyrgð leikskólastjóra að svo sé. Hann ætti einnig að sjá til þess að haldið sé námskeið í slysavörnum og skyndihjálp leikskólabarna annað hvert ár þar sem starfsmenn endurnýja skyndihjálparréttindi sín. Þeir sem halda slysavarnarnámskeið fyrir starfsmenn leikskóla skulu hafa til þess bæra þekkingu og reynslu. Einnig er mikilvægt að starfsmenn leikskóla æfi reglulega viðbrögð við mismunandi slysum. • Þegar nýir starfsmenn hefja störf í leikskólanum er mikilvægt að þeim sé gefið tækifæri til að sækja námskeið í slysavörnum og skyndihjálp leikskólabarna eins fljótt og auðið er. • Leikskólastjóri á að hafa yfirlit yfir alla starfsmenn sem hafa lokið skyndihjálparnámskeiði. Bent er á að gott er að halda yfirlit yfir þá starfsmenn sem hafa farið á slysavarnarnámskeið í öryggishandbók leikskólans. Allt starfsfólk leikskóla ber ábyrgð á börnum meðan þau eru í leikskólanum og verður að grípa inn í ef barn sýnir af sér hegðun sem getur leitt til slysa. Starfsfólk þarf að vera meðvitað um hvaða hættur geta leynst í leikskólum og umhverfi þeirra. Einnig á starfsfólk að sýna þá ábyrgð að taka strax úr umferð ónýt leikföng og bilaða hluti sem leitt geta til slysa við notkun. Nauðsynlegt er að skrá börn þegar þau koma í leikskólann og þegar þau fara heim til að tryggja að starfsmenn hafi ávallt yfirlit yfir réttan fjölda barna í leikskólanum. Eðlilegt er að leikskólinn setji sér verklag varðandi það ef annar aðili en forsjáraðili sækir barnið. 4.1.1 Fræðsla starfsfólks um öryggismál Öryggi barna í leikskólum á að vera forgangsmál. Það er því mikilvægt að allir starfsmenn fái þjálfun í öryggismálum. Mikilvægt er að þjálfun í öryggismálum byrji um leið og starfsmenn taka til starfa og að því sé fylgt eftir að þeir öðlist færni í öryggismálum. Það sem þarf að hafa í huga fyrir alla starfsmenn er meðal annars: • Námskeið um slysavarnir og skyndihjálp annað hvert ár til að starfsmenn geti endurnýjað skyndihjálparréttindi sín. • Árleg könnun á kunnáttu og þekkingu starfsmanna í öryggismálum og viðbrögðum skólans við slysum, bruna og annarri vá. • Regluleg þjálfun starfsmanna í viðbragðsáætlunum og öryggisferlum skólans. Fyrir nýja starfsmenn þarf sérstaklega að huga að: • Kynningu á viðbragðsáætlunum og öryggisferlum skólans. • Kynningu á staðsetningu sjúkrakassa og öryggisblaða. • Slysavarnanámskeiði eins fljótt og auðið er.

Öryggishandbók leikskóla 18 4.2 Öryggisferlar og viðbragðsáætlanir Skriflegir og virkir öryggisferlar eiga að vera í öllum leikskólum og hanga uppi á áberandi stað/stöðum. Mikilvægt er að slíkt svæði sé tilgreint sem neyðarstöð. Allt starfsfólk á að kunna öryggisferla leikskólans og hafa auðveldan aðgang að skriflegum upplýsingum um þá. Kynna þarf verkferla viðbragðsáætlana fyrir nýju starfsfólki og afleysingastarfsfólki á fyrstu starfsdögum þess í leikskólanum. 4.2.1 Hlutverk og ábyrgð Skilgreina þarf ábyrgð starfsfólks í starfslýsingu og hlutverk þess í viðbragðsáætlun. Allt starfsfólk á að vita hvert hlutverk þess er ef upp kemur neyðarástand. Stjórnendur öryggismála (öryggisvörður og öryggistrúnaðarmaður) á vinnustað eiga að tryggja öryggi barna, eigið öryggi, öryggi starfsfólks, að unnið sé eftir viðbragðsáætlunum og gerð áhættumats. Áhættumat er áhrifarík aðferð við að tryggja hámarksöryggi barna í leikskólum. Áhættumat ætti að byggja á skráningu leikskóla á slysum þar sem áverkar eru flokkaðir á grundvelli alvarleika. Með því móti verður matið faglegt og hægt að fyrirbyggja að alvarlegir atburðir endurtaki sig. 4.2.2 Reglubundnar æfingar á viðbragðsáætlunum Mikilvægt er að viðbrögð við ólíkum aðstæðum, s.s. alvarlegum slysum, eldi eða náttúruvá séu æfð reglulega. Með því að æfa mismunandi viðbragðsáætlanir reglulega verður þekking og færni starfsfólks meiri og betri. Það eykur líkur á að unnt sé að bregðast fumlaust við mismunandi aðstæðum. Mikilvægt er að leikskólastjóri feli einum starfsmanni að fylgjast með æfingunni og skrá niður hvernig gengur þannig að ef upp koma vandamál sé skráning að æfingu lokinni sem farið er yfir, það sem miður fór er rætt og fundnar leiðir til úrbóta. Slíkt ferli er mjög lærdómsríkt og eykur öryggi starfsfólks. • Viðbragðsáætlanir vegna slyss og eldsvoða er mikilvægt að æfa tvisvar sinnum á ári. • Viðbragðsáætlun við vá er mikilvægt að æfa einu sinni á ári. 4.2.3 Tegundir viðbragðsáætlana Gera þarf hið minnsta þrjár tegundir neyðaráætlana sem taka mið af hættunni. Viðbrögð við slysi Viðbrögð við eldsvoða Viðbrögð við náttúruvá Meta þarf ástand hins slasaða út frá skyndihjálparþekkingu. Koma öllum út og safna saman á fyrirfram ákveðnum stað. Koma öllum í öruggt skjól og safna saman á fyrirfram ákveðnum stað. Hringja í 112 Hringja í 112 Hringja í 112 Tryggja öryggi á slysstað. Nafnakall Nafnakall Veita slösuðum aðhlynningu. Veita slösuðum aðhlynningu. Veita slösuðum aðhlynningu. 4.2.4 Grunnupplýsingar um barn vegna slysa og bráðaveikinda Mikilvægt er að leikskólinn hafi nauðsynlegar grunnupplýsingar um þau börn sem eru í skólanum. Upplýsingarnar þurfa að vera skriflegar og geymdar á aðgengilegan hátt þar sem allt starfsfólk leikskólans veit um þær og getur nálgast þær þegar þörf krefur, t.d. þar sem sjúkrakassinn er geymdur og aðrar upplýsingar um viðbrögð við eldsvoða, slysum eða náttúruvá.

Öryggishandbók leikskóla 19 Foreldrar bera fyrst og fremst ábyrgð á að grunnupplýsingar séu réttar. Í byrjun hvers skólaárs er mikilvægt að leikskólinn hafi frumkvæði að því að yfirfara upplýsingarnar í samráði við foreldra og fái ávallt upplýsingar um breytingar. Nauðsynlegar grunnupplýsingar um barn vegna slysa og bráðaveikinda • Nafn barns. • Kennitala barns. • Er barn með ofnæmi, nauðsynlegt að skrá öll þekkt ofnæmi. • Er barnið með greindan sjúkdóm, mikilvægt að skrá heiti sjúkdóms og læknis sem annast barnið. • Tekur barnið lyf að staðaldri, mikilvægt að skrá heiti lyfs, magn og tímasetningu inntöku. • Nöfn foreldra, heimilisfang, heimasími, farsími, vinnusími og vinnustaður (nauðsynlegt að skrá heiti hans, deild ef um stóran vinnustað er að ræða og heimilisfang). • Nafn á þeim sem hægt er að hafa samband við ef ekki næst í foreldra, heimilisfang, heimanúmer, farsími, vinnusími og vinnustaður. • Taka þarf fram ef foreldrar eiga erfitt með að skilja eða tala íslensku og tilgreina móðurmál þeirra. 4.3 Sjúkrakassi Í sjúkrakassa á aðeins að vera sá búnaður sem talinn er upp í lista yfir innihald sjúkrakassa hér að neðan. Annað getur tafið starfsfólk við að finna það sem leitað er að. Allir starfsmenn leikskólans verða að kunna að nota fumlaust þann búnað sem er í sjúkrakassanum. 4.3.1 Notkunarreglur sjúkrakassa Mikilvægt er að leikskólastjóri feli einum starfsmanni ábyrgð á sjúkrakassa. Ábyrgðarmaður sjúkrakassa sér um að í honum sé ávallt sá búnaður sem þar á að vera. Eftir notkun á sjúkrakassa þarf ábyrgðarmaður að fara yfir innihald hans. Ef einhvern búnað vantar í kassann á að gera tafarlausar úrbætur á því. Fjöldi sjúkrakassa í hverjum leikskóla fer eftir stærð og gerð húsnæðis. Mikilvægt er að sjúkrakassinn sé ávallt aðgengilegur og að allir starfsmenn viti um staðsetningu hans. • Í sjúkrakassanum á að vera listi yfir innihald. • Sjúkrakassi þarf að vera aðgengilegur og auðveldur í flutningum. • Mikilvægt er að notandi kynni sér innihald kassans og viti hvernig á að nota innihald hans. • Æskilegt er að í leikskólanum sé til fyrstu hjálpar bakpoki til að taka með í lengri vettvangsferðir. • Handþvottur er mikilvægur áður en átt er við sár. • Nota skal einnota hanska þegar blóð er meðhöndlað. • Dauðhreinsað innihald kassans hefur takmarkaðan endingartíma. Útrunnum búnaði þarf að skipta út fyrir nýjan. • Ekki geyma lyf í sjúkrakassanum. Samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012 skulu lyf geymd í læstum hirslum. • Mikilvægt er að fara yfir kassann reglulega.

Öryggishandbók leikskóla 20 4.3.2 Listi yfir innihald sjúkrakassa • 1 rúlla plástur (bréfplástur, heftiplástur) • 1 lítil skæri (stálskæri) • 1 góð flísatöng (riffluð) • 1 stk. 10 cm krepbindi (teygjubindi) eða næsta stærð við • 1 stk. 7,5 cm krepbindi (teygjubindi) eða næsta stærð við • 1 stk. 5 cm krepbindi (teygjubindi) eða næsta stærð við • 1 pk. skyndiplástur 4 cm (tauplástur) • 1 pk. skyndiplástur 6 cm (tauplástur) • 1 fetill (þríhyrningur) • 5 stk. 10-30 ml saltvatn 0,9% • 5 bómullarpinnar í lokuðu plasti (plastfilmu) • 1 pk.10x10 cm vasilíngrisja • 1 pk. 5x5 cm vasilíngrisja • 1 stk. sprauta 15 ml • 1 pk. 10x10 cm grisjur (5 stk.) • 2 pk. 10x10 cm grisjur (1 stk.) • 1 pk. 5x5 cm grisjur (5 stk.) • 2 pk. 5x5 cm grisjur (1 stk.) • 1 par af einnota latexfríum hönskum • 1 stk. einnota blástursgríma (vörn gegn smiti)

Öryggishandbók leikskóla 21 5 Öryggi í námsumhverfi Mikilvægt er að starfsfólk leikskóla sé meðvitað um þá hættu sem getur steðjað að börnum í nánasta umhverfi s.s. af tækjum og tólum og sjái fyrir þær hættur sem hugsanlega geta komið upp. 5.1 Fyrirbyggjandi aðgerðir Ganga þarf úr skugga um að ekki leynist hættur í umhverfi barna sem geta valdið þeim alvarlegum slysum og því er mikilvægt að allt umhverfið sé eins öruggt og hægt er. Æskilegt er að búið sé að fyrirbyggja eins mikið af hættum og hægt er og gera áhættumat. 5.1.1 Starfsmenn Meta þarf hverju sinni hversu margir starfsmenn þurfa að vera til staðar. Ef starfsfólk þarf að bregða sér frá er mikilvægt að annað starfsfólk sé látið vita. Það hefur komið fyrir að slys hafi orðið í leikskóla og enginn starfsmaður á svæðinu. Þessum slysum hefði mögulega verið hægt að afstýra hefði starfsmaður verið til staðar. 5.1.2 Hljóðvist Hávaði hefur ekki einungis áhrif á heyrn og nám. Þekkt er að hávaði veldur streitu og getur haft aðrar neikvæðar afleiðingar á andlega og líkamlega líðan barna. Til að meta áhrif hávaða á nám og líðan nemenda í skólum er mikilvægt að við reglulegar kannanir sé spurt sérstaklega út í hljóðvist og vinnuaðstæður barna. Mikilvægt er að mælingar séu miðaðar við börn og unglinga og taki sérstakt tillit til heyrnar- og hljóðnæmni þeirra sem og þeirrar starfsemi sem fram fer í skólanum. Mikilvægt er að miðað sé við þau skilyrði sem þarf til þess að börn geti tileinkað sér nám. Ekki er nóg að miða við þau mörk hávaða sem beinlínis skemma heyrn. Mikilvægt er að allur búnaður sé keyptur með góða hljóðvist í huga. Á vef Umhverfisstofnunar eru leiðbeiningar um hljóðvistarkröfur í umhverfi barna þar sem meðal annars má finna góð ráð gegn hávaða í umhverfi barna. Taka skal mið af viðmiðum í Vinnuumhverfisvísi Vinnueftirlits ríkisins varðandi hávaða. Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands hafa gefið út handbókina Kennsluumhverfið - hlúum að rödd og hlustun sem nýta má við skipulagningu skólastarfs og umhverfis. Einnig er þar að finna lista yfir hagnýt ráð sem eru til þess fallin að draga úr hávaða, en ýmislegt er hægt að gera til að draga úr hávaða með litlum tilkostnaði. 5.1.3 Rödd og raddvernd Kennarar þurfa að kunna á atvinnutæki sitt, röddina, og vita hvað getur skaðað það. Rödd kennarans þarf að vera áheyrileg og geta gegnt ætlunarverki sínu, nemandinn þarf að hafa gagn af hlustun og umhverfið má ekki spilla þar fyrir. Reyndin er hins vegar sú að alltof oft vinna þessir þrír þættir – rödd, hlustun og umhverfi – illa saman. Það er mikilvægt að starfsmenn fái fræðslu um raddbeitingu, hvað geti skaðað röddina og leiðir til að koma í veg fyrir raddvandamál. Ættu skólar að huga að þeim þætti reglulega í starfsþróun sinni. Til þess mætti t.d. nota fræðslumyndband um raddvernd og ráð til að draga úr raddþreytu og bækling um raddheilsu kennara. 5.1.4 Matmálstímar Á matmálstíma, þegar heitur matur er á borðum, er mikilvægt að hugað sé að því að nægilega margt starfsfólk sé til staðar til að tryggja megi öryggi barna. Matarvagn skal vera staðsettur það langt frá

Öryggishandbók leikskóla 22 matarborðum að börn geti ekki togað matarílát yfir sig. Mikilvægt er að setja reglur um öryggi í matmálstímum til að koma í veg fyrir brunaslys. Nota skal kalt vatn í fötu/íláti fyrir hnífapör. Ef boðið er upp á heitar súpur eða annan heitan vökva fyrir börn þarf að passa að það hellist ekki yfir þau eða geti brennt þau á annan hátt. 5.1.5 Heitir drykkir Heitir drykkir geta valdið alvarlegum bruna á börnum. Því ætti starfsfólk aldrei að fara með heita drykki inn í leikrými barna. Með leikrými barna er átt við öll svæði leikskólans úti og inni sem börn hafa aðgang að. 5.1.6 Húsgögn Bókaskápa og hillur, óháð hæð þeirra, á að festa við vegg. Algengt er að þessir innanstokksmunir séu notaðir til að afmarka leikrými í takmarkaðan tíma. Ganga þarf frá öryggi þeirra á viðeigandi hátt t.d. með því að setja festingar á skápana sem auðvelt er að losa. Sé um varanlega staðsetningu slíkra innanstokksmuna að ræða á að koma fyrir festingu á veggi. Slíkur frágangur er mikilvægur í tilvikum jarðskjálfta og ekki síst ef barn klifrar upp á skáp. Æskilegt er að velja skilrúm sem eru stöðug eða festa þau við vegg eða gólf. Öll húsgögn á hjólum geta verið varasöm en þau eru valtari en hefðbundin húsgögn þrátt fyrir þyngd þeirra. Húsgögn á hjólum eiga einnig að vera föst við vegg með festingum sem auðvelt er að losa og festa aftur. Ef notuð eru hljómtæki eða sjónvarpstæki á slíkum vögnum á að festa tækin niður á vagninn. Stólar og borð eiga að vera stöðug. Ef þau eru völt eða hlutar þeirra farnir að losna er mikilvægt að strax sé gert við þau til að koma í veg fyrir slys. Koma á í veg fyrir að hvöss horn á borðum og hillum geti skaðað börn. Mikilvægt er að beisli séu í öllum háum stólum við matarborð og að börn noti beisli í samræmi við þroska og aldur. Til að koma í veg fyrir köfnunarslys er mikilvægt að strax sé gert við eða skipt um áklæði á svampdýnum og sessum þegar það slitnar en börn plokka gjarnan svampinn og setja í munninn. 5.1.7 Hurðir, hurðapumpur og klemmuvarnir Mikil klemmuhætta fylgir útidyrahurðum í leikskólum. Ganga þarf úr skugga um að hurðapumpa sé á útidyrahurð. Hurðapumpur eru gerðar fyrir mismunandi þyngd hurða, því er mikilvægt að val á hurðapumpu sé í samræmi við þyngd og gerð hurðar. Í ákveðnum vindáttum getur vindstyrkur orðið mikill; kanna þarf hver eiginlegur vindstyrkur getur orðið og taka ákvörðun með tilliti til þess um það hversu sterk hurðapumpan þarf að vera. Vindstyrkur getur verið það mikill hér á landi í vissum áttum að sterkasta hurðapumpa ræður ekki við vindfangið. Í þeim tilfellum þarf að smíða skýli eða vindfang fyrir hurðina til að hún valdi ekki slysi á börnum. Hurðapumpur hafa mismunandi hreyfigetu. Gott eftirlit og viðhald þarf að vera með hurðapumpum þar sem þær afstillast með tímanum við mikla notkun. Rétt stillt hurðapumpa á að virka þannig að þegar hurð lokast hreyfist hún tiltölulega hratt fyrst en síðan lokast hún hægt síðustu 20-30 cm. Það er mikilvægt öryggisatriði ef hurðapumpa afstillist að hún sé lagfærð eins fljótt og hægt er. Ef nýstillt hurðapumpa afstillist fljótt þarf að kanna hvort hún henti fyrir hurðina. Klemmuvarnir eiga að vera á öllum hurðum þannig að börn geti ekki óvart stungið fingri í fals á hurð og lokað henni þannig að slys hljótist af. Til er mikið úrval af klemmuvörnum. Klemmuvarnir endast

Öryggishandbók leikskóla 23 ekki endalaust, það er því mikilvægt að gert sé við þær reglulega. Endingartími klemmuvarna er oft skemmri á útidyrahurðum vegna veðurfarsáhrifa á efnið í þeim. Mikilvægt er að hurðastopparar séu settir upp fyrir ofan hurðina. Varast ber að hafa hurðastoppara við gólf. 5.1.8 Fataherbergi Í fataherbergjum getur plássleysi skapað fallhættu ef fatnaður og ýmis búnaður sem tilheyrir börnum er hafður á gólfinu. Ef háar hillur eru fyrir ofan fatahólf barna myndast hætta á að hlutir falli á börnin þegar verið er að toga hluti niður. Hættan er sérstaklega mikil þegar um mjög þunga hluti er að ræða eins og barnabílstóla eða þungar töskur. Ef hillur eru til staðar fyrir aukabúnað barna þarf að ganga þannig frá að ekki skapist hætta á að hlutir geti fallið yfir börn. Snagar fyrir fatnað og annað verða að vera öruggir þannig að þeir geti ekki skaðað börn. Dæmi um örugga snaga eru snagar sem eru varðir og skaga ekki fram fyrir hillu. Einnig eru til plastsnagar sem eru hengdir neðan í hillur í fataherbergjum, þeir snúast þannig að ef barn dettur á þá meiðist barnið síður. Fjarlægja þarf snaga sem skapa hættu á slysi eða eignartjóni. 5.1.9 Upplýsingatöflur Staðsetning á upplýsingatöflum í fataherbergjum eða á göngum skiptir máli þegar kemur að öryggi yngri barna. Gæta þarf þess að teiknibólur séu ekki notaðar eða litlir segulkubbar sem passa í kokhólk. 5.1.10 Þurrkskápar Ef þurrkskápar eru staðsettir í fataherbergjum eða í herbergjum sem börn hafa auðvelt aðgengi að skal gæta þess að þeir hitni ekki mikið að utan svo að börn brenni sig ekki á þeim við snertingu. Ef skápur hitnar mikið að utan þarf að koma honum fyrir í rými sem börn hafa ekki aðgang að. Þurrkskápar eiga að vera festir við vegg, sérstaklega á jarðskjálftasvæðum þar sem skáparnir eru þungir og geta veitt börnum og starfsfólki alvarlega áverka. Gæta þarf að því að rafmagnssnúrur þurrkskápa liggi ekki niðri við gólf á gönguleiðum. Ef rafmagnssnúra úr þurrkskáp er á gönguleið þarf að koma henni þannig fyrir að hún valdi ekki falli. 5.1.11 Bekkir Öruggast er að bekkir séu festir við gólf til að koma í veg fyrir að þeir falli yfir fætur barna. Mikilvægt er að gæta þess að ekki myndist hættulegt bil á milli veggjar og bekkjar. Mesti þunginn í bekkjum er að ofan en það gerir þá oft og tíðum valta. 5.1.12 Opnanleg fög Mikilvægt er að opnanleg fög sem eru í hæð barna séu með öryggislæsingu. Öryggislæsingin verður að vera stillt með þeim hætti að gluggaopið sé ekki meira en 9 cm. Velja þarf stormjárn sem ekki eru hættuleg börnum. Varast ber stormjárn með skörpum brúnum. Í sumum byggingum eru gluggar notaðir sem neyðarútgangar. Opnanlegu fögin á þeim eru stór og verða að hafa læsingu sem auðvelt er að opna ef koma þarf fólki út úr brennandi húsi. Vandamálið við þessa neyðarútganga/glugga er að börn eiga oft auðvelt með að opna læsingarnar og því ákveðin hætta á að þau fari eða detti út. Gæta þarf að bæði öryggissjónarmiðin séu gildandi í slíkum gluggum, þ.e. að notuð sé læsing sem auðvelt er að opna en að hún sé þannig úr garði gerð að yngri börn geti ekki opnað hana. Í byggingum með gluggum sem ná niður á gólf og þar sem aðgengi barna að þeim er auðvelt skal setja öryggisgler.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=