Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 45 Fylgja ber þeim leiðbeiningum almannavarnanefndar sem gilda á svæðinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.almannavarnir.is 9.3.4 Jökulhlaup Jökulhlaup stafa ýmist af eldgosum eða jarðhita undir jökli. Stærsta náttúruváin vegna jökulhlaupa hér á landi er vegna eldgoss í Kötlu í Mýrdalsjökli. Vatnamælingar hafa þróað viðvörunarkerfi vegna flóða sem eiga upptök í eldstöðvum og jarðhitakerfum undir jökli. Þegar hlutfall jarðhitavatns í jökulvatni hækkar, eykst leiðni. Ef leiðni eða vatnshæð fer yfir fyrirfram ákveðin mörk hringir mælirinn í síma Neyðarlínunnar 112. Neyðarlínan 112 sér um að kalla út vatnamælingamann sem metur ástandið. Fylgja skal leiðbeiningum frá almannavarnarnefnd á svæðinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.almannavarnir.is 9.3.5 Flóðbylgjur Flóðbylgjur eru mjög sjaldgæfar hér á landi en þær geta valdið miklu tjóni. Bylgjur geta myndast í kjölfar jarðskjálfta, jökulhlaupa og eldgosa. Einnig getur hrun í landgrunninum eða hrun í sjó fram orsakað flóðbylgjur. Flóðbylgjur hafa valdið skaða t.d. þegar snjóflóð hafa fallið í sjó fram í þröngum fjörðum á Vestfjörðum og Austfjörðum. Fylgja skal leiðbeiningum frá almannavarnarnefnd á svæðinu. Nánari upplýsingar er að finna á www.almannavarnir.is Að öðru leyti varðandi viðbrögð við náttúruvá vísast í sniðmát af viðbragðsáætlun og viðbragðsleiðbeiningar sem unnin voru af vinnuhópi sem skipaður var af Skólameistarafélagi Íslands í samvinnu við almennavarnadeild ríkislögreglustjóra og finna má á heimasíðu Menntamálastofnunar hér: https://mms.is/rafraenar-handbaekur-um-oryggi-og-velferd-barna-ileik-og-grunnskolum

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=