Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 17 4 Slysavarnir og líkamlegt öryggi Þessi hluti handbókarinnar á við um leikskóla og er stuðst við lög, reglugerðir og aðalnámskrá. Handbókinni er meðal annars ætlað að vera leiðarvísir við gerð neyðaráætlana, fyrir leikskóla. 4.1 Forvarnir og fræðsla Allir starfsmenn leikskóla (bæði fastráðnir og lausráðnir) þurfa að kunna skyndihjálp leikskólabarna og viðhalda þeirri þekkingu með því að fara yfir og æfa reglulega viðbrögð við slysum og vá. Mikilvægt er að allir starfsmenn leikskólans kunni að bregðast við slysi á fumlausan hátt og er það á ábyrgð leikskólastjóra að svo sé. Hann ætti einnig að sjá til þess að haldið sé námskeið í slysavörnum og skyndihjálp leikskólabarna annað hvert ár þar sem starfsmenn endurnýja skyndihjálparréttindi sín. Þeir sem halda slysavarnarnámskeið fyrir starfsmenn leikskóla skulu hafa til þess bæra þekkingu og reynslu. Einnig er mikilvægt að starfsmenn leikskóla æfi reglulega viðbrögð við mismunandi slysum. • Þegar nýir starfsmenn hefja störf í leikskólanum er mikilvægt að þeim sé gefið tækifæri til að sækja námskeið í slysavörnum og skyndihjálp leikskólabarna eins fljótt og auðið er. • Leikskólastjóri á að hafa yfirlit yfir alla starfsmenn sem hafa lokið skyndihjálparnámskeiði. Bent er á að gott er að halda yfirlit yfir þá starfsmenn sem hafa farið á slysavarnarnámskeið í öryggishandbók leikskólans. Allt starfsfólk leikskóla ber ábyrgð á börnum meðan þau eru í leikskólanum og verður að grípa inn í ef barn sýnir af sér hegðun sem getur leitt til slysa. Starfsfólk þarf að vera meðvitað um hvaða hættur geta leynst í leikskólum og umhverfi þeirra. Einnig á starfsfólk að sýna þá ábyrgð að taka strax úr umferð ónýt leikföng og bilaða hluti sem leitt geta til slysa við notkun. Nauðsynlegt er að skrá börn þegar þau koma í leikskólann og þegar þau fara heim til að tryggja að starfsmenn hafi ávallt yfirlit yfir réttan fjölda barna í leikskólanum. Eðlilegt er að leikskólinn setji sér verklag varðandi það ef annar aðili en forsjáraðili sækir barnið. 4.1.1 Fræðsla starfsfólks um öryggismál Öryggi barna í leikskólum á að vera forgangsmál. Það er því mikilvægt að allir starfsmenn fái þjálfun í öryggismálum. Mikilvægt er að þjálfun í öryggismálum byrji um leið og starfsmenn taka til starfa og að því sé fylgt eftir að þeir öðlist færni í öryggismálum. Það sem þarf að hafa í huga fyrir alla starfsmenn er meðal annars: • Námskeið um slysavarnir og skyndihjálp annað hvert ár til að starfsmenn geti endurnýjað skyndihjálparréttindi sín. • Árleg könnun á kunnáttu og þekkingu starfsmanna í öryggismálum og viðbrögðum skólans við slysum, bruna og annarri vá. • Regluleg þjálfun starfsmanna í viðbragðsáætlunum og öryggisferlum skólans. Fyrir nýja starfsmenn þarf sérstaklega að huga að: • Kynningu á viðbragðsáætlunum og öryggisferlum skólans. • Kynningu á staðsetningu sjúkrakassa og öryggisblaða. • Slysavarnanámskeiði eins fljótt og auðið er.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=