Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 51 10.7 Grunnur að matsblaði á námi og starfi - Allir starfsmenn Nafn leikskóla algjörlega sammála sammála hvorki né ósammála algjörlega ósammála Það er sameiginlegur skilningur skólasamfélags, foreldra og grenndarsamfélags að styrkja sýn skólans um velferð nemenda. Virk stefna er innan skólans um öruggt og heilbrigt skólaumhverfi. Sérstök leiðsögn skólans er um að efla andlega og líkamlega velferð nemenda. Stefna er um aukna vellíðan fyrir starfsfólk skólans og starfsmanna annarra stofnana sem tengjast skólanum. Óskir nemenda eru hafðar að leiðarljósi við mótun stefnu um heilbrigt og öruggt skólaumhverfi og um heilsueflingu. Foreldrar og nemendur taka þátt í mótun stefnu um velferð nemenda og við endurmat. Virk forvarnarstefna er innan skólans. Öllum nemendum er skapað námsaðgengi óháð hugsanlegum félagslegum, andlegum eða líkamlegum kvillum eða fötlun. Stefna og verklagsreglur um velferð nemenda eru kynntar foreldrum sérstaklega, á kynningarfundum, í fréttabréfum og á vefsíðum skólans. Reglubundið mat fer fram á viðhorfum nemenda, heimila og grenndarsamfélags um líðan í skólasamfélaginu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=