Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 35 8 Slys Í lögum um landlækni nr. 41/2007 segir að hann skuli, í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur, skipuleggja og halda skrár á landsvísu um heilsufar, sjúkdóma, slys, lyfjaávísanir, fæðingar og starfsemi og árangur heilbrigðisþjónustunnar. Formleg skráning í Slysaskrá Íslands hófst 1. október 2001. Slysaskrá Íslands inniheldur upplýsingar um slys með meiðslum og upplýsingar um eignatjón í umferðaróhöppum. Einungis eru skráðar lágmarksupplýsingar um slysið sjálft, slasaða einstaklinga og ökutæki. Hægt er að skoða tölur um fjölda slasaðra eftir aldri og kyni á vefsíðu Embættis landlæknis. Hér á landi verða alvarlegustu slysin á eða við heimili barna og má þar nefna að alvarlegustu brunaslysin verða á eða við heimili barna á leikskólaaldri. 8.1 Að hefja skyndihjálp og sinna barni þar til sjúkrabíll kemur Starfsfólk leikskóla hefur ekki heimild til að meðhöndla áverka, slíkt er í höndum lækna og hjúkrunarfræðinga og þeirra sem öðlast hafa til þess sérstakt leyfi. Hlutverk starfsfólks leikskóla, þegar slys ber að höndum, er að greina, koma í veg fyrir frekara líkamlegt tjón og koma barni til læknis en það er skilgreint sem skyndihjálp. Á vefsíðunni skyndihjalp.is sem er á vegum Rauða kross Íslands má finna stuttar og hagnýtar leiðbeiningar fyrir almenning um hvernig bregðast megi við ýmsum slysum og veikindum. Leiðbeiningarnar henta vel þegar rifja skal upp aðferðir skyndihjálpar, t.d. þegar komið er að umferðarslysi, einstaklingi sem hefur hlotið áverka á höfði, beinbrot eða hjartaáfall. Hafa ber í huga að: • Skyndihjálp er veitt út frá mati á ástandi barnsins og því haldið áfram þangað til sjúkrabíllinn er kominn. • Í þeim tilfellum þar sem viðkomandi ræður ekki einn við að veita skyndihjálp óskar hann eftir aðstoð nærstaddra. • Þegar enginn er til aðstoðar, verður viðkomandi að reyna sitt besta og bíða rólegur þangað til sjúkrabíllinn kemur. 8.2 Að koma ró á svæðið – Hinn slasaði gengur alltaf fyrir Þegar alvarlegt slys verður í leikskóla eða í ferðum á vegum hans er ekki óeðlilegt að það myndist ringulreið meðal starfsfólks og barna. Til að draga úr líkum á að slíkt ástand skapist er mikilvægt að leikskólar hafi virka viðbragðsáætlun og æfi hana reglulega. 8.3 Fyrstur á slysstað Mikilvægt er að sá sem kemur fyrstur á slysstað taki yfir stjórnina hafi hann lokið námskeiði í skyndihjálp, ef ekki kallar hann til næsta yfirmann. Auk þess þarf hann að: • Meta ástand þess slasaða út frá sinni kunnáttu í skyndihjálp. • Afla upplýsinga frá hinum slasaða eða vitnum. • Meta hvort hringja á í Neyðarlínu 112.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=