Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 60 10.16 Viðbragðsáætlun – Viðbrögð við ógnunum, náttúruvá, smitsjúkdómum, efnaslysum og fl. Ritið inniheldur meginskipulag þegar vá ber að höndum. Athuga að ritinu má ekki breyta efnislega fyrir utan nauðsynlega aðlögun (nafn skóla, starfsheiti og fl.). Sérstaklega er vakin athygli á því að skýrt þarf að koma fram hverjir eru í neyðarstjórn skólans. Sjá vefslóð að ritinu hér: https://mms.is/rafraenar-handbaekur-um-oryggi-og-velferd-barnai-leik-og-grunnskolum 10.17 Viðbragðsleiðbeiningar fyrir skólastofnanir – Leiðbeiningar um viðbrögð í neyðartilvikum. Leiðbeiningarnar eru nánari útlistun um fyrstu viðbrögð við skilgreindri vá. Hver vá fyrir sig hefur verið yfirfarin af sérfræðingum á hverju sviði. Til dæmis hefur kaflinn um ofbeldi/hryðjuverk og sprengihótanir verið yfirfarin af sérsveit Ríkislögreglustjóra, kaflinn um sýkla af Embætti landlæknis o.s.frv. Sjá vefslóð að ritinu hér: https://mms.is/rafraenar-handbaekur-um-oryggi-og-velferd-barnai-leik-og-grunnskolum Mikilvægt er að hver skóli fyrir sig uppfæri sínar verklagsreglur og/eða öryggishandbækur með tilliti til viðbragðsáætlunar og viðbragðsleiðbeininga

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=