Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 36 • Veita skyndihjálp. • Meta hvort þörf sé á aðstoð annarra starfsmanna. 8.4 Fjögur skref skyndihjálpar • Tryggja öryggi og koma þannig í veg fyrir frekara slys. • Meta ástand hins slasaða til að greina hvort um lífshættulegt ástand er að ræða eða ekki. Aðstæður á vettvangi og umkvartanir slasaðra gefa strax góða mynd af ástandinu. • Kalla til hjálp, hringja í Neyðarlínuna 112 . • Veita viðeigandi skyndihjálp á rólegan og yfirvegaðan hátt. 8.5 Greiningarstig áverka Lægsta stig: Minniháttar skrámur og skurðir sem ekki þarfnast meðferðar á heilsugæslustöð eða á slysadeild. Sár sem starfsmaður má meðhöndla og setja á einfaldar umbúðir. Dæmi: grunnt klór, kæling á kúlu, skolun á sandi úr auga. Miðstig: Áverki sem starfsmaður metur að þarfnist meðferðar á heilsugæslustöð eða slysadeild. Áverkinn er þess eðlis að foreldrar/forsjáraðilar geta farið með barnið á heilsugæslustöð, til tannlæknis eða á slysadeild. Dæmi: handleggsbrot, skurðir sem þarfnast saumaskapar, tannáverkar, heilahristingur. Þó þessir áverkar þarfnist ekki í fyrstu sjúkrabíls 112 geta þeir breyst í alvarlegt stig ef ástand barns versnar skyndilega. Það þarf starfsmaður að geta metið strax og hringt í Neyðarlínuna 112. Leiki vafi á alvarleika áverka skal kalla til sjúkrabíl. Alvarlegt stig: Áverkar sem falla undir þetta eru t.d. stórir brunar, meðvitundarleysi vegna höfuðáverka eða annarra hluta, fótbrot/lærbrot, aðskotahlutur í öndunarvegi, hjarta og öndunarstopp. Mikilvægt er að starfsmenn bregðist fumlaust við og meti alvarleika ástandsins strax, virki viðbragðsáætlun, hefji viðeigandi skyndihjálparmeðferð og hringi strax í Neyðarlínuna 112. 8.6 Hringt á sjúkrabíl og sjúkrakassi sóttur • Ef hringja þarf á sjúkrabíl er best að fá einhvern nærstaddan til að hægt sé að vera áfram hjá barninu, það veitir því öryggi. • Í þeim tilfellum þar sem ástandið er lífshættulegt (hjarta- og öndunarstopp, meðvitundarleysi eða köfnun) og enginn nærstaddur verður starfsmaður sjálfur að hringja í Neyðarlínuna, 112. • Mikilvægt er að sá sem hringir geti gefið allar upplýsingar, H-in 3 (Hvar? Hver? Hvað?). • Ef nauðsynlegt er að nota gögn úr sjúkrakassa má biðja þann sem fór í símann að taka hann með á bakaleiðinni. Ef það þolir ekki bið er mikilvægt að annar nærstaddur sé sendur að ná í sjúkrakassann. 8.7 Hvernig á að hringja í Neyðarlínuna - 112 Það er grundvallaratriði að allir starfsmenn leikskólans kunni að hringja í Neyðarlínuna. Hér á landi er eitt neyðarnúmer fyrir sjúkrabíl, lögreglu og slökkvilið. Neyðarnúmerið er 112, EINN EINN TVEIR en ekki hundrað og tólf.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=