Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 21 5 Öryggi í námsumhverfi Mikilvægt er að starfsfólk leikskóla sé meðvitað um þá hættu sem getur steðjað að börnum í nánasta umhverfi s.s. af tækjum og tólum og sjái fyrir þær hættur sem hugsanlega geta komið upp. 5.1 Fyrirbyggjandi aðgerðir Ganga þarf úr skugga um að ekki leynist hættur í umhverfi barna sem geta valdið þeim alvarlegum slysum og því er mikilvægt að allt umhverfið sé eins öruggt og hægt er. Æskilegt er að búið sé að fyrirbyggja eins mikið af hættum og hægt er og gera áhættumat. 5.1.1 Starfsmenn Meta þarf hverju sinni hversu margir starfsmenn þurfa að vera til staðar. Ef starfsfólk þarf að bregða sér frá er mikilvægt að annað starfsfólk sé látið vita. Það hefur komið fyrir að slys hafi orðið í leikskóla og enginn starfsmaður á svæðinu. Þessum slysum hefði mögulega verið hægt að afstýra hefði starfsmaður verið til staðar. 5.1.2 Hljóðvist Hávaði hefur ekki einungis áhrif á heyrn og nám. Þekkt er að hávaði veldur streitu og getur haft aðrar neikvæðar afleiðingar á andlega og líkamlega líðan barna. Til að meta áhrif hávaða á nám og líðan nemenda í skólum er mikilvægt að við reglulegar kannanir sé spurt sérstaklega út í hljóðvist og vinnuaðstæður barna. Mikilvægt er að mælingar séu miðaðar við börn og unglinga og taki sérstakt tillit til heyrnar- og hljóðnæmni þeirra sem og þeirrar starfsemi sem fram fer í skólanum. Mikilvægt er að miðað sé við þau skilyrði sem þarf til þess að börn geti tileinkað sér nám. Ekki er nóg að miða við þau mörk hávaða sem beinlínis skemma heyrn. Mikilvægt er að allur búnaður sé keyptur með góða hljóðvist í huga. Á vef Umhverfisstofnunar eru leiðbeiningar um hljóðvistarkröfur í umhverfi barna þar sem meðal annars má finna góð ráð gegn hávaða í umhverfi barna. Taka skal mið af viðmiðum í Vinnuumhverfisvísi Vinnueftirlits ríkisins varðandi hávaða. Samband íslenskra sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands hafa gefið út handbókina Kennsluumhverfið - hlúum að rödd og hlustun sem nýta má við skipulagningu skólastarfs og umhverfis. Einnig er þar að finna lista yfir hagnýt ráð sem eru til þess fallin að draga úr hávaða, en ýmislegt er hægt að gera til að draga úr hávaða með litlum tilkostnaði. 5.1.3 Rödd og raddvernd Kennarar þurfa að kunna á atvinnutæki sitt, röddina, og vita hvað getur skaðað það. Rödd kennarans þarf að vera áheyrileg og geta gegnt ætlunarverki sínu, nemandinn þarf að hafa gagn af hlustun og umhverfið má ekki spilla þar fyrir. Reyndin er hins vegar sú að alltof oft vinna þessir þrír þættir – rödd, hlustun og umhverfi – illa saman. Það er mikilvægt að starfsmenn fái fræðslu um raddbeitingu, hvað geti skaðað röddina og leiðir til að koma í veg fyrir raddvandamál. Ættu skólar að huga að þeim þætti reglulega í starfsþróun sinni. Til þess mætti t.d. nota fræðslumyndband um raddvernd og ráð til að draga úr raddþreytu og bækling um raddheilsu kennara. 5.1.4 Matmálstímar Á matmálstíma, þegar heitur matur er á borðum, er mikilvægt að hugað sé að því að nægilega margt starfsfólk sé til staðar til að tryggja megi öryggi barna. Matarvagn skal vera staðsettur það langt frá

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=