Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 30 Mikilvægt er að gert sé strax við stífluð niðurföll. Ef lok vantar á niðurfall eða það snýr öfugt er mikilvægt að laga það strax. 5.5.7 Tröppur, rampar og handrið Tröppur og rampar eiga að uppfylla ákvæði 202. greinar byggingarreglugerðar nr. 112/2012 um tröppur, stiga og stigahús. Brattar tröppur með stutt eða langt niðurstig eru mjög hættulegar. Æskilegt er að handrið sé staðsett við tröppur. Ef brotnar upp úr þrepum eða þau losna þarf að gera við þau strax. 5.5.8 Hálka Mikilvægt er að huga að hálkuvörnum í kringum leikskóla. Skýr verkaskipting þarf að vera á meðal starfsmanna sveitarfélaga hvað hálkuvarnir varðar. Áður en starfsemi hefst í leikskólanum þarf að vera búið að hálkuverja. Sama gildir um snjómokstur. Þar sem því verður við komið ættu gönguleiðir að leikskólabyggingum að vera hálkuvarðar t.d. með hita undir gangstéttum/göngustígum. Ef ekki er hiti undir gangstéttum/göngustígum er mikilvægt að rekstraraðili leikskóla sjái til þess að leysa þann vanda með söltun eða sandburði. Æskilegt er að rekstraraðili geri leiðbeiningar um hálkuvarnir í samvinnu við leikskólastjóra. Ganga þarf úr skugga um að þær séu virkar. Bílastæði geta oft verið mjög hál, því er mikilvægt að gerðar séu sambærilegar ráðstafanir þar. 5.5.9 Leikvallatæki Leikvallatæki þurfa að uppfylla kröfur reglugerðar um öryggi leikvallatækja og svæða og eftirliti með þeim nr. 942/2002. Mikilvægt er að starfsfólk leikskóla kynni sér fyrir hvaða aldurshópa tækin eru hönnuð. Ef leiktæki á leikskólalóð hæfir ekki aldri ákveðins hóps barna er mikilvægt að þess sé gætt að þau leiki sér ekki í því. Í reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim nr. 942/2002 kemur fram að: • Fylgja þarf leiðbeiningum framleiðenda um viðhald á leikvallatækjum. • Rekstraraðili er ábyrgur fyrir að framkvæma reglubundið eftirlit með leikvallatækjum. • Innra eftirlit skal framkvæma samkvæmt gátlista og í því skal vera slysaskráning. Í innra eftirlitinu þarf að tilgreina til hvaða úrbóta skal grípa þegar frávik verða á ákvæðum reglugerðarinnar og hvenær úrbótum er lokið. Mælt er með að innra eftirlit sé hluti af gæðahandbók. • Ábyrgðaraðili innra eftirlits gerir rekstraraðila viðvart um það sem aflaga fer og bendir á nauðsynlegar úrbætur. Rekstraraðili gerir nauðsynlegar úrbætur eða tekur leikvallatæki úr notkun. Á heimasíðu Umhverfisstofnunar má finna upplýsingar og handbækur um skoðanir leiksvæða og leikvallatækja. Þar eru einnig tillögur að gátlistum fyrir reglubundið eftirlit með leikvallatækjum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=