Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 48 10.4 Tillaga að viðbrögðum og vinnuferli starfsfólks leikskóla við samskiptavanda og einelti Ef grunur vaknar um samskiptavanda/einelti í barnahópnum skal eftirfarandi ferli fylgt: Alltaf skal bregðast samdægurs við og vinna eftir eineltisáætlun skóla, þessari vinnu á að vera lokið innan viku. A. Rannsókn meðal nemenda og starfsfólks: A.1 Byrjað er að kanna málið hjá starfsfólki og börnum öðrum en geranda og þolanda. A.2 Vinnuferli í máli þolenda Rætt við þolanda og foreldra þolanda. Skráið nöfn, dagsetningu og helstu atriði viðtals. A.3 Vinnuferli í máli geranda Rætt við geranda og foreldra geranda. Skráið nöfn, dagsetningu og helstu atriði viðtals. B. Ef einelti er staðfest fer eftirfarandi vinna í gang: B.1 Þolandi – Viðtöl við þolanda/þolendur ásamt foreldrum þar sem þeir fá stuðning og tryggt er að þeir láti vita ef eineltið heldur áfram. B.2 Gerandi – Viðtal við geranda ásamt foreldrum. Skráið nöfn, dagsetningu og helstu atriði viðtals. B.3 Unnið með barnahópnum. Í framhaldinu er m.a. rætt um framkomu, samskipti og einelti. Unnið er markvisst að bættum samskiptum í barnahópnum meðal annars með því að skoða tengsl barnanna og unnið út frá niðurstöðum. C. Eftirfylgni, ekki seinna en viku frá síðustu viðtölum: Deildarstjóri verður áfram í reglulegu sambandi og skráir niður hvernig gengur. C.1 Þolandi – Foreldrar þolanda eru látnir vita um gang mála. C.2 Gerandi – Foreldrar geranda eru látnir vita um gang mála. C.3 Skipulagður stuðningur er veittur í a.m.k. 6 mánuði bæði til geranda og þolanda.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=