Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 57 10.13 Tillaga að verklagsreglum sveitarfélaga um tilkynningu til foreldra vegna alvarlegra eða lífshættulegra slysa á börnum • Starfsmaður leikskóla fer með barninu í sjúkrabíl á slysadeild, sjúkrahús eða heilsugæslu. • Leikskólastjóri í samráði við lögreglu tilkynnir foreldrum um slysið og leitað er til áfallahjálparteymis slysadeildar þegar um lífshættuleg slys er að ræða. Við innritun barns á slysadeild, sjúkrahús eða heilsugæslu greinir starfsmaður frá því hvort og hvernig slysið hafi verið tilkynnt til foreldra. Slysadeildin, sjúkrahúsið eða heilsugæslan sér um að senda aðila úr áfallahjálparteymi til foreldra sé þess þörf. • Þegar ástand barns er lífshættulegt er ekki æskilegt að tilkynna slysið í gegnum síma, slíkt getur stefnt foreldrum í hættu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=