Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 24 5.1.13 Gluggakistur Ganga þarf frá gluggakistum þannig að börn geti ekki fest fætur í þeim. Í mörgum eldri húsum eru gluggakistur mjög djúpar og oft er haft bil frá vegg að gluggakistu til að hiti komist upp. Bilið má ekki vera meira en sem nemur 25 mm. 5.1.14 Gardínubönd Gardínubönd geta vafist um háls barna. Ganga skal frá gardínuböndum og snúrum þannig að ekki skapist hætta fyrir börn. Til dæmis með því að ganga frá snúrum upp á snúrustytti sem festa þarf ofarlega í gluggakarminn. Perlukeðjur er einnig hægt að setja upp á öryggishjól sem fest er á gluggakarminn að innanverðu. 5.1.15 Miðstöðvarofnar, rafmagnsofnar, blöndunartæki og heitt vatn Heitir miðstöðvarofnar og heitt vatn getur valdið alvarlegum brunaslysum hjá börnum. Mikilvægt er að byggja utan um ofna eða hafa frágang á þann hátt að ekki hljótist slys af. Lagnir sem eru utan á liggjandi og flytja heitt vatn þarf að hylja þannig að börn geti ekki brennt sig á þeim. Rafmagnsofnar eru hættumeiri en hefðbundnir miðstöðvarofnar, af þeim getur stafað eldhætta og því skal styðjast við leiðbeiningar framleiðenda þeirra ef það þarf að hylja þá. Einnig þarf að gæta þess að staðsetja ekki húsgögn eða annan búnað of nálægt þeim. Hitastýrð blöndunartæki, með hámark 38°C heitu vatni, eiga að vera á öllum handlaugum í leikskólum og í sturtum/handsturtum til að koma í veg fyrir að börn brenni sig á heitu vatni. 5.1.16 Stigar og tröppur Mikilvægt er að setja barnheld öryggishlið efst og neðst þar sem stigar eru í rými sem börn hafa aðgang að. Bil á milli rimla má ekki vera meira en 89 mm. Það sama gildir um bil á milli gólfa og handriða. Opið í opnum þrepum má ekki vera meira en 89 mm. Gæta þarf að því að þrep séu ekki hál. Gæta þarf vel að því að ekki sé notað bón sem skapar hálku eða sápur og rykmoppur sem innihalda mikla olíu. Handrið eiga að vera fyrir börn jafnt sem fullorðna. Lágmarkshæð handriða er 120 cm. Handrið eiga að vera með lóðréttum pílum til að hindra klifur. Hringlaga stigar eru óhentugir í byggingum þar sem börn dvelja. 5.1.17 Salerni, handlaugar og skiptiborðsaðstaða Samkvæmt reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002 eiga salerni og handlaugar að vera við hæfi barna. Setur á salernum í leikskólum eiga að vera léttar sem og lok. Á salernum barna eru oft lág skilrúm með hurðum. Ganga þarf frá hurðum á þann hátt að börn geti ekki klemmt sig. Til að koma í veg fyrir klemmuslys er hægt að hafa bil, bilið má ekki vera minna en 8 mm og ekki meira en 25 mm. Þar sem handlaugar barna eru háar er nauðsynlegt að börn hafi stöðugan hnall til að standa á þegar þau þvo sér. Skiptiborð eiga að vera staðsett þannig að börn geti ekki náð til hættulegra hluta. Gæta þarf að því að skiptiborð séu traust og stöðug. Öruggt skiptiborð hefur að lágmarki 10 cm kant til að koma í veg fyrir

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=