Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 8 Öryggishandbók leikskóla Handbókin er unnin í samvinnu mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Herdísar Storgaard og Þorláks Helga Þorlákssonar með stoð í lögum um leikskóla nr. 90/2008 og reglugerð um starfsumhverfi leikskóla nr. 655/2009. Í reglugerðinni segir að sveitarstjórn skuli útbúa handbók fyrir starfsfólk leikskóla með leiðbeinandi reglum um öryggi barna og slysavarnir í leikskólum. Leiðbeiningar þessar skulu grundvallaðar á gildandi lögum og reglugerðum um öryggisskipulags- og byggingarmál og samræmdum starfsleyfisskilyrðum fyrir leikskóla, sbr. lög nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Leiðbeiningar þessar skulu staðfestar af sveitarstjórn sem jafnframt skal sjá um að þær séu aðgengilegar almenningi á heimasíðu skólans eða sveitarfélagsins eða með öðrum hætti og kynntar í skólasamfélaginu. Sambandi íslenskra sveitarfélaga og menntamálaráðuneyti ber að móta leiðbeiningar um gerð slíkrar handbókar. Handbókin er mun ítarlegri en reglugerðin segir til um og er það gert til að auðvelda sveitarfélögum og skólum að uppfylla ákvæði reglugerðarinnar. Handbókin er ætluð sveitarstjórnum, rekstraraðilum, skólastjórnendum, kennurum og öðrum sem starfa í leikskólum til stuðnings við gerð öryggishandbókar, öryggisáætlana og viðbragðsáætlana fyrir leikskóla. Handbókina má nýta í heild sinni eða nýta þá þætti sem henta hverju sinni. Mikilvægt er að í öryggishandbók fyrir starfsfólk leikskóla sé tæpt á öllum þeim þáttum sem koma fram í handbók þessari. Handbókin er fyrst og fremst ætluð sem uppflettirit til að auðvelda notendum að fylgja eftir þeim lögum og reglugerðum sem gilda um leikskólann og umhverfi hans. Uppsetningu handbókarinnar er ætlað að auðvelda notendum að finna upplýsingar um hina mismunandi þætti sem taka á velferð og öryggi leikskólabarna. Markmiðið með handbókinni er að setja fram á aðgengilegan hátt upplýsingar um þá þætti sem huga þarf að í daglegum rekstri og starfi leikskóla. Handbókinni er skipt í 10 meginkafla, hverjum meginkafla er síðan skipt í undirkafla til að auðvelda leit að sértækum þáttum. Meginkaflar handbókarinnar eru: 1. Lög, reglugerðir og námskrár sem gilda um leikskóla 2. Velferð barna og ungmenna 3. Netöryggi 4. Slysavarnir og líkamlegt öryggi 5. Öryggi í námsumhverfi 6. Eftirlit 7. Öryggi í ferðum á vegum leikskóla 8. Slys 9. Almannavarnir og eldvarnir 10. Áhugavert lesefni og viðaukar Handbókinni er ætlað að vera rammi um sameiginlega vinnu allra í skólasamfélaginu að velferð nemenda og byggir á efni sem Herdís Storgaard og Þorlákur Helgason unnu fyrir mennta- og menningarmálaráðuneyti. Ráðuneytið hefur falið Menntamálastofnun umsjón, vistun og uppfærslu handbókanna fyrir leikskóla og grunnskóla.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=