Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 43 9 Almannavarnir og eldvarnir Almannavarnir snúast um það skipulag og stjórnkerfi sem er virkjað á hættustundu. Samkvæmt 1. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008 er markmið þeirra að skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir eða takmarka, eftir því sem unnt er að • Almenningur verði fyrir líkams- eða heilsutjóni • Umhverfi og eignir verði fyrir tjóni af völdum náttúruhamfara eða af mannavöldum, farsótta eða hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum • Veita líkn í nauð og aðstoð vegna tjóns, sem hugsanlega kann að verða eða hefur orðið. Lögin taka til samhæfðra almannavarnaviðbragða til þess að takast á við afleiðingar neyðarástands sem kann að ógna lífi og heilsu almennings, umhverfi og eignum. Sveitarfélög fara með almannavarnir í héraði, í samvinnu við ríkisvaldið. Stjórn almannavarnamála í hverju lögsagnarumdæmi er í höndum lögreglustjóra sem hefur almannavarnanefnd sér til fulltingis. Alls eru 15 umdæmi lögreglustjóra í landinu. Lögreglustjóri fer einnig með stjórn leitar og björgunar í sínu umdæmi. Mikilvægt er að upplýsingar um viðbrögð við eldvörnum og náttúruvá séu til staðar í leikskólanum og þær séu skýrar. Leikskólastjóri setur upp viðbragðsáætlun fyrir sinn skóla og skal fylgja fyrirmælum almannavarnanefnda á hverjum stað fyrir sig. Sjá nánari upplýsingar á www.almannavarnir.is 9.1 Rýming Ef lögreglustjóri gefur út fyrirmæli um rýmingu er öllum sem staddir eru í leikskólanum skylt að rýma bygginguna. Almannavarnir í héraði opna fjöldahjálparstöð og halda skráningu um dvalarstaði fólks þar til því er heimilt að fara til síns heima. Mikilvægt er að allir leikskólar geri ítarlega rýmingaráætlun þar sem ábyrgð og verkefni starfsmanna við rýmingu leikskólans eru skilgreind. Tillaga að viðbragðsáætlun leikskóla við rýmingu: 1. Starfsmenn hjálpa börnunum að yfirgefa byggingu gegnum næsta neyðarútgang og safnast saman á fyrirfram ákveðnum stað. 2. Einn starfsmaður er ábyrgur fyrir stjórnun rýmingar sem meðal annars felur í sér að: a. Virkja „viðbrögð við vá“. b. Sjá til þess að hringt er í 112. c. Hafa nafnakall eftir lista á söfnunarstað.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=