Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 10 2 Velferð barna og ungmenna Skólinn er griðastaður barna og ungmenna og hvílir mikil ábyrgð á öllu starfsfólki skóla til að búa börnum vellíðan og öryggi í daglegu starfi. Velferð barna er sameiginlegt verkefni skóla og heimila. Það er mikilvægt að börn fái notið bernsku sinnar og eigi góðar minningar úr skóla. Þegar fjallað er um velferð nemenda er horft til þriggja þátta. Þeir eru: • Félagslegt öryggi nemenda og að þeir séu metnir út frá eigin verðleikum. • Tilfinningalegt öryggi nemenda sem finna væntumþykju annarra. • Traust þar sem nemendur átta sig á að þeir geti treyst þeim sem eru að mennta þá. Með ofbeldi er í þessari handbók átt við andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í öllum birtingarmyndum þess. Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst (Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands). Markmið laga og reglugerða um skólahald er meðal annars að tryggja að nemendum líði vel. Mikilvægt er að þeir búi við öryggi og að gagnkvæmt traust ríki í skólasamfélaginu. Kaflar tvö og þrjú eiga við um leik- og grunnskóla og er í þeim stuðst við lög, reglugerðir og aðalnámskrár fyrir bæði skólastigin. Þar sem talað er um nemanda eða barn er átt við barn eða ungmenni í leik- eða grunnskóla. 2.1 Sýn skólans á velferð Bernsku- og unglingsárin eru mikilvægt skeið í ævi hvers einstaklings og eiga skólar að leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir barna og unglinga. Skólastarfið miðar að virkri þátttöku þeirra í lýðræðissamfélagi innan skóla sem utan. Í lögum um leik- og grunnskóla eru skýrar áherslur á öryggi og velferð og hvatt er til góðs og farsæls samstarfs allra sem að skólasamfélaginu koma. Allir geta verið sammála um að nemendur eiga rétt á að eiga góðar minningar úr skóla hvort heldur er úr námi, félagslífi eða tilfinningalega. Barn sem líður vel í skóla, á góða vini og getur tekið beinan þátt í að móta góðan skóla er líklegra til að ná árangri í skóla og það hefur áhrif á skólabrag. Góður árangur barns í skóla hefur einnig áhrif á heilsufar þess. Barn sem býr við tilfinningalegt og félagslegt öryggi í skóla er líklegt til að geta metið stöðu sína og náð árangri á eigin forsendum. Samkvæmt reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum, nr. 1040/2011 skulu skólar vinna sameiginlega sýn og stefnu um velferð og birta í skólanámskrá. Mikilvægt er að hvoru tveggja sé skilgreint, unnið sé að því að styrkja ímynd skólans og skapa sameiginlegan skilning meðal starfsmanna, nemenda, foreldra og grenndarsamfélagsins. Í skólasamfélaginu er lögð rækt við að vinna að almennri velferð nemenda og gegn andfélagslegri hegðun í hverju svo sem hún kann að birtast svo sem einelti, öðru ofbeldi og niðurlægingu. Ekki er til sambærileg reglugerð fyrir leikskóla en í lögum um leikskóla, nr. 90/2008 segir að meginmarkmið uppeldis og kennslu í leikskóla skuli meðal annars vera að:

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=