Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 54 10.10 Tillaga að skipulagi við undirbúning ferða á vegum leikskóla • Einn starfsmaður er ábyrgðarmaður í ferðinni. • Ábyrgðarmaður hefur lista yfir öll þau börn sem eru í ferðinni og upplýsingar um aðstandendur þeirra (t.d. afrit af grunnupplýsingum um barn vegna slysa og bráðaveikinda. • Ábyrgðarmaður ber ábyrgð á að ferðasjúkrakassi/ferðasjúkrabakpoki sé tekinn með í ferðina. • Ábyrgðarmaður þarf að vita nákvæma staðsetningu hópsins hverju sinni ef upp koma veikindi eða slys til geta hringt í Neyðarlínuna 112 eða foreldra. • Mikilvægt er að farsími sé með í för. • Tryggja þarf að fjöldi starfsfólks sem fer með sé nægilegur. • Tryggja þarf eftirlit með öllum börnum. Góð leið til þess er að hver starfsmaður sé ábyrgur fyrir ákveðnum hópi barna. • Starfsmenn sem bera ábyrgð á ákveðnum börnum í ferðinni láta ábyrgðarmann vita að öll börnin séu til staðar áður en lagt er af stað í upphafi ferðar og á áningarstöðum. • Mikilvægt er að börnin beri einhvers konar auðkenni, t.d. endurskinsvesti, þannig að auðveldara sé að fylgjast með hópnum. • Huga þarf að því að börn séu rétt búin fyrir ferðina miðað við aðstæður og lengd ferðar. • Huga þarf að sólarvörn fyrir börnin. • Mikilvægt er að halda börnunum saman í hóp og tryggja að þau verði aldrei viðskila við starfsfólk leikskóla eða foreldra/forsjáraðila. Gæta þarf að göngustígum, þar getur verið margvísleg umferð, bæði reiðhjóla og rafknúinna ökutækja sem og gangandi vegfarenda.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=