Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 11 • hlúa að börnum andlega, vitsmunalega og líkamlega í samræmi við þarfir hvers og eins svo að börnin fái notið bernsku sinnar • stuðla að víðsýni barna og efla siðferðisvitund þeirra • leggja grundvöll að því að börn verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðisþjóðfélagi • rækta hæfileika barna til tjáningar og sköpunar í þeim tilgangi m.a. að styrkja sjálfsmynd þeirra, heilbrigðisvitund, öryggi og hæfni til mannlegra samskipta. Skólinn er, næst á eftir heimili barnsins, mikilvægasta umhverfi þess og þar mótast meðal annars félags- og tilfinningaþroski að hluta. Því er mikilvægt að skólar móti sér sýn á velferð og birti hana í skólanámskrá sinni. Hér að neðan eru talin upp nokkur atriði sem vert er að hafa til hliðsjónar við mótun heildarsýnar skóla á velferð nemenda: • Markmið um aukna velferð nemenda er samvinnuverkefni skóla og heimilis. • Skólinn skilgreini í hverju jákvæður skólabragur felst og móti leiðir til að viðhalda honum. Starfsfólk skóla, nemendur og foreldrar skulu í sameiningu leggja áherslu á að móta og viðhalda góðum starfsanda í skólanum og jákvæðum skólabrag. • Leggja skal áherslu á styrkleika barna og hæfni. Leitast skal við að vinna að fjölbreyttum viðfangsefnum og starfsháttum til að koma til móts við mismunandi námsþarfir ólíkra einstaklinga og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. • Helstu þættir heilbrigðis sem leggja þarf áherslu á eru: jákvæð sjálfsmynd, hreyfing, næring, hvíld, andleg vellíðan, góð samskipti, ábyrgð, öryggi, hreinlæti, kynheilbrigði og skilningur á eigin tilfinningum og annarra. • Skólinn skal vinna markvisst að forvörnum þar sem hugað er að félagslegri vellíðan og velferð nemenda. • Skólinn er griðastaður barna þar sem þau eiga að finna til öryggis. Hafa skal að leiðarljósi að börn og unglingar þarfnast verndar og leiðsagnar fullorðinna. • Nemendur eiga rétt á að láta skoðanir sínar í ljós í málum sem þá varða og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þeirra. • Nemendur eiga að fá tækifæri til að skiptast á skoðunum við önnur börn og fullorðna þar sem þeir finna lausnir í sameiningu og miðla málum. • Þarfir og áhugi barna ættu að vera sá grunnur sem mótar umhverfi og starfshætti skólans. Starfsfólk skóla skal grípa til viðeigandi ráðstafana ef þörf krefur þannig að öll börn fái sem best notið sín miðað við þroska og þarfir hvers og eins. • Ofbeldi, einelti og annað andfélagslegt atferli skal aldrei liðið. Skólinn skal grípa til viðeigandi ráðstafana til að uppræta slíkt atferli, koma í veg fyrir að það þróist til að bæta umhverfi nemenda. • Starfsfólk skóla ber ábyrgð á að börnum líði vel í skólanum. Í skólasamfélaginu á nemandi að fá tækifæri til að þroska og nýta hæfileika sína og njóta bernsku sinnar. Skólinn á, í samstarfi við foreldra, að kappkosta að fylgjast með og efla alhliða þroska allra barna, veita þeim hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og stuðla að öryggi þeirra og vellíðan. Samkvæmt aðalnámskrá eru starfshættir skóla og samskipti allra aðila ekki síður mikilvæg en önnur viðfangsefni til að ná markmiðum skólanna og stuðla að velferð og menntun. Starfshættir skólanna skulu mótast af umburðarlyndi og jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi og ábyrgð.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=