Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 39 8.10.3 Að hverju þarf að gæta þegar skráð er? Mikilvægt er að við skráningu á slysaskráningarblaðið sé skráð hver var endanlegur meðferðaraðili og hver áverkagreiningin var. Slysaskráningarblað þar sem þessar upplýsingar vantar er ekki fullgilt. Ef ekki er hægt að skrá það strax verður að bíða eftir að foreldri láti vita hver/hverjir meðferðaraðilar voru og hver endanleg sjúkdómsgreining var. Leikskólastjóri ber ábyrgð á verklagi um frágang þessara blaða og tryggir að þeim sé framfylgt. 8.10.4 Undirritun foreldra á slysaskráningarblaðið og afrit af því Meginreglan er að foreldrar þurfa ekki að kvitta á slysaskráningarblöðin nema þar sem sveitarfélög hafa sett um það reglur að svo skuli vera. Hins vegar er nauðsynlegt að foreldri kvitti á slysaskráningarblaðið í þeim tilfellum þar sem starfsmaður leikskóla hefur metið áverkann á þann hátt að það þurfi að fara með barnið til læknis/hjúkrunarfræðings en foreldri ákveður að fara ekki eftir þeim tilmælum. Er þetta gert til að tryggja að ekki verði hægt að koma síðar og halda því fram að starfsmenn leikskólans hafi ekki áttað sig á alvarleika áverkans. Það getur til dæmis verið í tilfelli þar sem barn hefur fengið gat á höfuðið og starfsmaður leikskólans hefur hringt í foreldri og óskað eftir því að farið sé með barnið á slysadeild. Við komu foreldris í leikskólann ákveður það að fara ekki með barnið heldur býr um sárið sjálft (í leikskólanum eða heima). Þetta er mikilvægt að skrá þar sem meðferðin var í höndum foreldris og aukaverkanir geta komið fram í sárinu síðar. Í slíkum tilfellum er mikilvægt að fá undirskrift foreldra á skráningarblaðið. Dæmi um texta sem foreldrar eru beðnir um að skrifa neðst á skráningarblaðið: „Ég undirrituð móðir/faðir barnsins (nafn barns) hef tekið þá ákvörðun að fara ekki eftir tilmælum leikskólans um aðhlynningu fyrir barnið á slysadeild eða heilsugæslu.“ Viðkomandi undirritar með dagsetningu, nafni og kennitölu. Ekki er gert ráð fyrir því að foreldri fái sjálfkrafa afrit af slysaskráningarblaðinu nema reglur sveitarfélagsins kveði á um það. Foreldrum er heimilt að skoða blaðið og fá afrit af því. Slysaskráningarblaðið er trúnaðarmál og má því ekki afrita né afhenda það öðrum en þeim sem hafa heimild til að skoða það s.s. heilbrigðiseftirlitinu sem ber að skoða þessi blöð til að kanna fjölda slysa og ástæður þeirra sem hluta af sínu ytra eftirliti. Ef beðið er um skráningarblaðið af öðrum þarf leyfi foreldra. Tilgangur beiðninnar þarf að vera skýr, s.s. ef verið er að vinna rannsóknir. Mikilvægt er að einungis þeir sem uppfylla allar kröfur um rannsóknarheimildir og meðferð persónuupplýsinga fái aðgang að slysaskráningarblöðum í rannsóknarskyni. 8.10.5 Hvað er gert við slysaskráningarblöðin? Leikskólastjóri ber ábyrgð á að slysaskráningarblöð séu varðveitt og aðgengileg á meðan barnið dvelur þar. Við útskrift þess skal leikskólastjóri sjá til þess að blaðið fari í varðveislu í skjalasafni sveitarfélagsins eða til þess einstaklings sem varðveitir skjalasöfn einkarekinna leikskóla. Slysaskráningarblöðin þurfa að vera aðgengileg ef foreldrar eða barnið sjálft þurfa á þessum upplýsingum að halda síðar á lífsleiðinni samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn nr. 66/1985. 8.11 Lögregluskýrsla Ef alvarlegt slys verður í leikskóla eða slys sem veldur barni áverka sem hugsanlega getur tekið sig upp síðar á ævinni er mikilvægt að gera lögregluskýrslu. Lögregluskýrsla greiðir fyrir afgreiðslu hjá tryggingarfélögum. Skýrslan er varðveitt hjá lögreglu. Leikskólastjóri getur óskað eftir afriti af henni ef þörf krefur. Í þeim tilfellum sem hringt er á sjúkrabíl kemur lögregla oftast með. Lögregla biður um ýmsar upplýsingar tengdar slysinu. Það er ekki lögregluskýrsla heldur skýrsla vegna útkalls sjúkrabíls; því þarf að fá lögreglu á staðinn til að gera sérstaka lögregluskýrslu um atvikið eða biðja um að hún sé gerð samhliða skýrslu vegna útkalls sjúkrabíls. Leikskólastjóri ber ábyrgð á að lögregluskýrsla sé gerð.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=