Handbók um velferð og öryggi í leikskólum

Öryggishandbók leikskóla 41 8.13 Viðtal við foreldra eftir alvarlegt slys Þegar niðurstöður könnunar á slysi liggja fyrir er mikilvægt að leikskólastjóri bjóði foreldrum barnsins sem slasaðist viðtal. Í viðtalinu er farið yfir athugun leikskólans á tildrögum slyssins og hvað leikskólinn hyggst gera í framhaldinu. Með því að fara yfir það sem gerðist með foreldrum og að segja þeim frá hvað gert hefur verið í kjölfarið eykst öryggistilfinning foreldra og traust þeirra til leikskólans. Því er mikilvægt að halda ekki upplýsingum sem skipta máli frá foreldrum. Leikskólastjóri þarf að hafa allar upplýsingar um málið áður en hann tjáir sig um það. Mikilvægt er að sveitarfélög/rekstraðilar setji sér verklagsreglur um framkvæmd viðtala eftir alvarleg eða lífshættuleg slys. 8.13.1 Foreldraráð og foreldrafélag Mikilvægt er að foreldrum, foreldraráði og foreldrafélagi sé tilkynnt um stöðu öryggismála í leikskólanum og að foreldraráði sé greint frá alvarlegum atvikum sem upp koma. Eftirlitsskýrslur heilbrigðiseftirlits ættu að vera aðgengilegar fyrir foreldra. 8.14 Tilkynning á slysi - Hvert ber að tilkynna? Mikilvægt er að ákveðin slys sem verða á börnum í leikskóla séu tilkynnt til þeirra aðila er málið varðar. Þau slys sem þarf að tilkynna eru skilgreind í kaflanum: Slys á börnum sem gera þarf lögregluskýrslu fyrir. 8.14.1 Tilkynning til rekstraraðila Tilkynna á öll slys til rekstraraðila til að tryggja að þeir hafi yfirlit yfir öll meiriháttar slys og geti gert viðeigandi ráðstafanir. Rekstraraðilar bera ábyrgð á því að öryggi barna sé tryggt. Rekstaraðili er auk þess ábyrgur fyrir fjármálum og því mikilvægt fyrir hann að hafa þessar upplýsingar t.d. þegar hann undirbýr fjárlög. Þetta ætti einnig að hjálpa honum í forgangsröðun viðhalds. Mikilvægt er að verkferlar varðandi tilkynningar til rekstraraðila og þeirra sem hafa eftirlit með húsnæði og leiksvæðum á vegum rekstraraðila séu skýrir þannig að leikskólastjóri viti hvert hann á að tilkynna slys. Verkferlarnir og gerð þeirra er á ábyrgð rekstraraðila. Yfirleitt er ákveðnum starfsmanni í sveitarfélaginu falið eftirlit með starfsemi leikskólans. Ef um einkarekna leikskóla er að ræða eða leikskóla sem starfræktir eru af félagasamtökum er almennt ákveðinn aðili skipaður til að vera í samstarfi við leikskólastjóra um almennan rekstur. 8.14.2 Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðiseftirlit viðkomandi sveitarfélags veitir leikskóla starfsleyfi að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Starfsleyfisskilyrðin taka m.a. á öryggi og slysavörnum, húsnæði og búnaði, leikföngum, lóð, leikvallatækjum og leiksvæði, skráningu slysa og reglubundnu innra eftirliti. Sjá nánar Starfsleyfisskilyrði fyrir leikskóla og grunnskóla á vef Umhverfisstofnunar. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga gerir árlega athugun á að kröfum um öryggi sé framfylgt og að reglubundið innra eftirlit hafi farið fram. Ef rekja má slys til vanbúnaðar/bilunar á húsnæði, lóð eða öðrum þáttum sem fram koma í starfsleyfisskilyrðum leikskóla skal tilkynna viðkomandi heilbrigðiseftirliti um slysið. Hægt er að senda tilkynningu rafrænt á vef Umhverfisstofnunar en einnig má senda þeim afrit af slysaskráningarblaði.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=