41
nána vini. Þegar saman fara ADHD og erfiðleikar í félagstengslum er
meiri hætta en ella á að einstaklingur lendi í aðlögunarvanda. Þannig
getur höfnun og skeytingarleysi jafnaldra haft alvarleg áhrif á hegðun
og ýtt undir neikvæða þætti eins og misnotkun vímuefna, brottfall úr
skóla, afbrot, námserfiðleika og kvíða o.fl.
55
Félagslegir erfiðleikar versna oft hjá nemendum með ADHD þegar
komið er á unglingastig með tilkomu hormónabreytinga og aukinna
námskrafna.
56
Sumir nemendur með ADHD ná þó betri tökum á
samskiptum og félagstengslum með auknum þroska.
Viðbrögð við skertri félagsfærni
Vísbendingar eru um að skert félagsfærni tengist skertri stýrifærni
heilans sem dregur úr sjálfsstjórn. Markviss þjálfun getur aukið vitund
barna og unglinga um félagsfærni og haft jákvæð áhrif á hegðun þeirra
heima og í skóla. Helsti ókostur félagsfærniþjálfunar felst í því að ekki
er tryggt að árangur sem næst á einum stað yfirfærist á nýjar aðstæður
eins og á milli skóla og heimilis.
57
Leiðir til að efla félagsfærni
Styðjast má við eftirtaldar leiðir til að styrkja félagsfærni barna með
ADHD og bæta samskipti þeirra við jafnaldra:
Þjálfa félagsfærni og kenna félagslegar lausnir vandamála og
ágreinings með skipulegum og markvissum aðferðum. Dæmi um
efni sem má styðjast við er
Í sátt og samlyndi
,
Að vaxa úr grasi
,
Samvera
,
ART
(
Agression Replacement Training
),
Stig af stigi
og
Vinir Zippýs
, sjá einnig vefslóðir í viðauka.
Kenna félagsfærni sem er þýðingarmikil í samskiptum barna, eins og
reglur í íþróttum og ýmsum leikjum.
Leitast við að fyrirbyggja að bekkjarfélagar verði vitni að uppákomum
þar sem barn með ADHD missir stjórn á sér.
Veita stuðning við að eignast vini, til dæmis í gegnum vinahópa.
Félagsfærniþjálfun getur farið fram í ýmsu samhengi innan og utan
skóla, á námskeiðum, í sumarbúðum og í litlum og stórum hópum.
Bækur sem byggja á aðferðum
hugrænnar atferlismeðferðar og
hjálpa börnum frá 6 ára aldri að
takast á við áhyggjur og kvíða,
reiði og neikvæðni. Þær innihalda
líflegan texta, myndir og verkefni.
1...,33,34,35,36,37,38,39,40,41,42 44,45,46,47,48,49,50,51,52,53,...67