45
Gátlisti – aðgerðalisti
Hvað hefur verið gert í skólanum?
Hvaða frekari úrræði eru möguleg?
Hefur verið farið yfir vanda barnsins með umsjónarkennara,
forráðamönnum og/eða fagfólki innan og utan skólans?
Er nauðsynlegt að stofna þverfaglegt þjónustuteymi vegna barnsins?
Er nauðsynlegt að barnið fái frekari greiningu? Hvers vegna /
hvers vegna ekki?
Hefur verið gerð áætlun um aðlögun námsumhverfis og
kennsluaðferða miðað við þarfir barnsins?
Er nauðsynlegt að gera einstaklingsnámskrá?
Hefur verið hugað vel að staðsetningu og líðan barnsins í ólíkum
kennsluaðstæðum, þ.á m. sérgreinatímum?
Hefur verið hugað að möguleikum barnsins á jákvæðum
samskiptum við skólafélaga og starfsfólk?
Hefur verið hugað að félagslegri stöðu barnsins; á það vini, ef ekki,
hvernig mætti bæta úr því?
Hvaða stuðning fær barn sem á erfitt með hegðun?
Hafa verið teknar ákvarðanir um samræmdar aðgerðir
til að fyrirbyggja óvæntar uppákomur?
Hvaða ráðstafanir eru gerðar ef barnið ræður ekki við aðstæður
utan skólastofu, þ.e. í frímínútum, matsal og á göngum?
Eru sjónrænar vísbendingar í umhverfinu til aðstoðar fyrir barnið?
Fær barnið nægilega hvatningu, endurgjöf og hrós?
Er hægt að bjóða upp á félagsfærniþjálfun ef þarf?
Eiga kennarar og starfsfólk kost á faglegri ráðgjöf og fræðslu um
ADHD?
Er samstarf við foreldra, fræðsla og ráðgjöf markviss?
Helstu þjónustustofnanir og þjónustuaðilar
Börnum sem þurfa frekari greiningu eftir frumgreiningu ADHD er
vísað til Þroska- og hegðunarstöðvar heilsugæslunnar, til sjálfstætt
starfandi sérfræðinga eða á barna- og unglingageðdeildir. Hér er
upptalning á helstu þjónustuaðilum sem sinna börnum með ADHD,
sjá vefslóðir í viðauka.
1...,37,38,39,40,41,42,43,44,45,46 48,49,50,51,52,53,54,55,56,57,...67