50
sé ekkert að gert. Mikilvægt er því að huga vel að félagslegri stöðu
barnanna og grípa til viðeigandi aðgerða ef þörf er á. Aðgerðir sem
styrkja félagsfærni gagnast stórum hluta barna með frávik í þroska eða
aðrar sérþarfir.
Brýnt er að skapa jákvæða umræðu um ADHD í skólasamfélaginu,
beina sjónum að styrkleikum barnanna og nálgast þau út frá áhugasviði
þeirra með aðlöguðu námi og viðurkenningu á sérþörfum þeirra í leik
og starfi. Margt af því sem ráðlagt er í þessu riti gagnast ekki aðeins við
kennslu nemenda með ADHD. Einhver hluti nemenda glímir við ein-
kenni ADHD án þess að uppfylla greiningarviðmið. Því má áætla að
kennsluaðferðir sem skila árangri við kennslu nemenda með ADHD
gagnist jafnframt við kennslu grunnskólanemenda almennt.
Þakkir
Eftirtöldum eru færðar þakkir fyrir ráð, spjall og yfirlestur á ýmsum stigum:
Aldís Yngvadóttir, Anna Kristín Jóhannesdóttir, Björk Jónsdóttir, Björk Þórar-
insdóttir, Eyrún Baldvinsdóttir, Guðmunda Ásgeirsdóttir, Gyða Hjartardóttir,
Haukur Örvar Pálmason, Inga Þóra Geirlaugsdóttir, Margrét V. Pálsdóttir, Páll
Magnússon, Regína Höskuldsdóttir.
Hilmari Hilmarssyni er þökkuð mikilvæg leiðsögn á öllum stigum og margar og
þarfar ábendingar.
Fræðsluefni
Hvað er ADHD?
Bæklingur, útg. ADHD samtökin
Stúlkur og ADHD
. Bæklingur, útg. ADHD samtökin
Börn með ADHD.
Bæklingur, útg. ADHD samtökin
Fullorðnir með ADHD.
Bæklingur, útg. ADHD samtökin
Ertu að tala við mig?
Bæklingur, útg. ADHD samtökin
Aladdín og töfrateppið – og aðrar ævintýrahugleiðslur
. (Þekkt ævintýri notuð
í slökunarhugleiðslur sem örva ímyndunarafl barna og hjálpa þeim að slaka á í
dagsins önn.) Marneta Viegas. Þýð. Árný Ingvarsdóttir. (2012).
Bætt hugsun, betri líðan
(handbók í hugrænni atferlismeðferð fyrir börn og
unglinga). P. Stallard. Þýð. Gyða Haraldsdóttir o.fl. Skrudda (2006).
Félagshæfnisögur
eftir Bryndísi Sumarliðadóttur. Útg. Umsjónarfélag einhverfra
(2004).
1...,42,43,44,45,46,47,48,49,50,51 53,54,55,56,57,58,59,60,61,62,...67