40
kunna að koma upp, grípa strax inn í og fyrirbyggja að vandinn vaxi.
Nauðsynlegt er að kenna nemendum
sjálfsbjargarviðleitni
svo
að þeir geti sjálfir farið fram á aðstoð og aðbúnað sem þeir þurfa.
Leggja ætti áherslu á að gera nemendur sér meðvitaða um þau
einkenni sem fylgja ADHD og að þeir láti kennara vita ef þeir eiga í
vandræðum eða eru illa upplagðir.
Þjálfa nemendur í ábyrgum
ákvarðanatökum
og að axla ábyrgð.
Kennari gæti til dæmis spurt nemanda sem ekki fylgir reglum „er
þetta góð eða slæm ákvörðun?“ Þessi spurning gefur nemandanum
tækifæri til að gera greinarmun á æskilegri og óæskilegri hegðun og
leiðrétta sjálfur hegðun sína.
Markviss kennsla í lífsleikni
styrkir nemendur félags- og tilfinninga-
lega. Völ er á fjölbreyttu námsefni fyrir öll stig grunnskóla.
ADHD og félagsfærni
Börn og unglingar með ADHD geta átt erfitt með að lesa í aðstæður og
taka eftir félagslegum vísbendingum sem eru undirstaða góðra félags-
tengsla. Sum eru sér ekki meðvituð um að þau geta verið hávaðasöm,
stjórnsöm, tillitslaus, kröfuhörð, ósveigjanleg og særandi í tali, jafnvel
árásargjörn. Sömu sögu er að segja um yfirdrifin reiðiviðbrögð sem
sum sýna þegar þau fá ekki sínu framgengt.
54
Þó skal hafa í huga að
þetta á alls ekki við öll börn og unglinga með ADHD.
Börn með ADHD eru líklegri en samanburðarhópur til að verða
fyrir höfnun af jafnöldrum auk þess sem þau eru ólíklegri til að eignast
Í þessum skemmtilega bæklingi
sem ætlaður er börnum og
unglingum er útskýrð ástæðan
fyrir hegðun og viðbrögðum sem
einstaklingar með ADHD sýna
og hvað er til ráða til að draga
úr einkennum.
ADHD – Farsæl skólaganga
Námsgagnastofnun 2013
Að lærA AF mistökum
Hvernig nota égmistök til að læra af þeim?
mistökin sem ég gerði:
__________________________________________________
____________________________________________________________
Þau komu sér illa fyrir…
________________________________________________
____________________________________________________________
Égætla bæta fyrir þaumeð því að…
_____________________________________
____________________________________________________________
Af þessummistökum hef ég lært að…
___________________________________
____________________________________________________________
Dagsetning: ___________________
___________________________________________________
Undirskrift
sjálfsmat
8
1...,32,33,34,35,36,37,38,39,40,41 43,44,45,46,47,48,49,50,51,52,...67