37
drengjanna. Stúlkur með ADHD eru því ólíklegri
til að vekja á sér athygli. Vandi þeirra er þó engu
síður alvarlegur. Þær greinast frekar með kvíða og
þunglyndi en geta jafnframt verið með undirliggj-
andi ADHD. Þar af leiðandi sýna þær ef til vill ýkt
eða deyfð tilfinningaviðbrögð, á unglingsaldri geta
einnig bæst við skapsveiflur sem fylgja hormónabreytingum.
Oft er ætlast til að stúlkur, fremur en drengir, hagi sér í samræmi
við væntingar umhverfisins, sýni hlýðni, hafi sjálfsaga, haldi
sig til hlés, séu snyrtilega klæddar og sýni tillitssemi gagnvart
öðrum. Vísbendingar eru um neikvæðari viðhorf gagnvart óæskilegri
hegðun hjá stúlkum en hjá drengjum. Þar sem stúlkur með ADHD
geta átt í erfiðleikum með að standa undir þessum kröfum er hætt við
að þær ásaki sjálfar sig og að endurteknar sjálfsásakanir komi niður á
sjálfstrausti þeirra og sjálfsmynd.
48
Áhrif svefns á frammistöðu í skóla
Unglingar þurfa að jafnaði meiri svefn en nokkur annar aldurshópur
eða rúmlega níu klukkutíma á nóttu.
49
Engu að síður hafa þeir tilhneig-
ingu til að vera lengi að festa svefn og geta þar af leiðandi átt í erfið-
leikum með að vakna tímanlega til að mæta í skóla. Augljóslega hefur
það áhrif á skap og einbeitingu unglinga ef þeir sofa ekki nóg.
Um helmingur unglinga með ADHD glímir við svefntruflanir eða
erfiðleika við að sofna og vakna.
50
Ekki er tryggt að barni eða ung-
lingi með ADHD takist að sofna þótt farið sé tímanlega í háttinn því
hugurinn getur verið á fleygiferð. Auk þess eiga unglingar með ADHD
oft í erfiðleikum með að ná værum svefni, margir vakna þreyttir þrátt
fyrir fullan svefn. Sumir skólar í Bandaríkjunum og í Danmörku hafa
lagað stundatöflur að svefnvanda nemenda og leyft þeim að mæta allt
að tveim kennslustundum seinna en aðrir og lengja skóladaginn í hinn
endann.
51
Ýmsar vísbendingar eru um að minnisúrvinnsla mikilvægra
upplýsinga eigi sér stað í svefni. Skortur á svefni skerðir minni
og einbeitingu, svo augljóslega þarf að finna leiðir til að leysa
svefnvandamál barna og unglinga með ADHD.
52
Fjallað er um leiðir til
að taka á svefntruflunum í fréttabréfi ADHD samtakanna, 1. tbl. 2011.
1...,29,30,31,32,33,34,35,36,37,38 40,41,42,43,44,45,46,47,48,49,...67