39
og kenna þeim valkosti til að takast á við þau, svo sem að tala um
reiðina, anda djúpt og telja upp að tíu, taka sér hlé til að róa sig, tala
við vin o.s.frv.
Mikilvægt er að
grípa inn í þegar og þar sem tiltekin hegðun
á
sér stað, þ.e. að veita stuðning nákvæmlega þegar nemandinn er að
þjálfa færnina. Að segja nemanda að muna eftir heimaverkefni eða
refsa honum fyrir að gleyma að vinna heimaverkefni er ekki árangurs-
rík leið til að breyta hegðun. Betra er að hafa fast fyrirkomulag á því
að kennari, stuðningsfulltrúi eða vinur hitti nemandann í byrjun og
lok skóladags til að fara yfir hvað á að læra heima og kanna hvort
nemandinn er með réttu bækurnar og annað skóladót.
Erfiðara hefur reynst að beita hvatningaraðferðum á unglingastigi en
yngri stigum, meðal annars vegna þess að ekki er auðvelt að finna
nægilega eftirsóknarverða umbun. Stundum má nota hópumbun,
t.d. þegar allur bekkurinn hefur lokið heimaverkefni á áætluðum
tíma fá allir að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Árangursríkt getur verið að kennari, nemandi og foreldri geri með sér
samning um tiltekin vandamál
, hvernig eigi að bregðast við þeim
og vinna að því að leysa þau. Samningur sem snýst um að breyta
hegðun er þó ekki trygging fyrir því að vandamálið leysist. Nemendur
með ADHD eiga oft í erfiðleikum með að fylgja eftir gerðum samningi
og þurfa markvissan stuðning til að standa við hann. Því þarf að koma
skýrt fram hvaða stuðning kennari eða foreldrar ætla veita nemand-
anum. Gæta þarf þess að samningurinn sé raunhæfur þannig að
nemandinn hafi möguleika á að fylgja honum eftir.
Sjálfsmat
getur hentað mjög vel fyrir unglinga, þá eru tiltekin atriði
sem nemandi, foreldrar og kennarar eru sammála um að þurfi að
taka á skoðuð og metin. Þessi atriði geta snúið að hegðun, ástundun,
námi eða öðru. Nemandinn merkir sjálfur daglega í t.d. sjálfsmatsbók
hvernig hann metur frammistöðu sína í hverjum tíma og kennari
skrifar undir. Ef ákveðið er að umbun fylgi jákvæðri frammistöðu þarf
hún að vera eftirsóknarverð fyrir nemandann.
Nemendur sem
fá tvo til þrjá valkosti
leggja sig oft betur fram og
sýna meiri áhuga og vinnusemi en ella, þeir einbeita sér betur og eru
yfirvegaðri. Varast ber að rugla nemendur í ríminu með of mörgum
valkostum. Oft þarf að veita þeim stuðning við að velja námsaðferðir,
valfög o.fl.
Sjálfsagt er að
hafa unglinga með ADHD með í ráðum
þegar nám
þeirra, einstaklingsnámskrá eða próftaka er skipulögð.
Aðstoð námsráðgjafa eða annars fagaðila
er æskileg til að fylgjast
með og hjálpa nemanda með ADHD að takast á við yfirfærslu frá
miðstigi yfir á unglingastig. Með því móti má greina vandamál sem
ADHD – Farsæl skólaganga
Námsgagnastofnun 2013
SAmNiNgur*
Nemandi – foreldri
Nafn:
__________________________________________________________________
gildir frá
________________
til
________________
markmiðmín eru að…
____________________________________________________________
____________________________________________________________
____________________________________________________________
Til þess að ná þessummarkmiðum þarf ég að…
____________________________________________________________
____________________________________________________________
____________________________________________________________
Fjölskyldanmínætlar að hjálpamér og hefur ákveðið að…
____________________________________________________________
____________________________________________________________
____________________________________________________________
_________________________________ _________________________________
Undirskriftnemanda
Undirskriftforeldra
*Gerðurísamvinnuviðnemandaogforeldra,t.d.íforeldraviðtali.Nemandigeturþurftaðstoðviðaðskrá.
markmið
ADHD – Farsæl skólaganga
Námsgagnastofnun 2013
HvAð vil ég bætA?
égætla að
1._______________________________________________________
2._______________________________________________________
Hvernig gengurmér?
Ekki nógu vel!
Á réttri leið!
tókst!
1. dagur
⎕ ⎕
2. dagur
⎕ ⎕
3. dagur
⎕ ⎕
4. dagur
⎕ ⎕
5. dagur
⎕ ⎕
Skrifaðu það sem þúætlar að bæta næst.
___________________________________________________________
___________________________________________________________
___________________________________________________________
___________________________________________________
Undirskrift
Skrifaðuhérþað
semþúviltbæta,
baraeitteðatvöatriði.
Halló!
Markmið
2
9
1...,31,32,33,34,35,36,37,38,39,40 42,43,44,45,46,47,48,49,50,51,...67