47
Hlíðarskóli
er innan grunnskólakerfis Akureyrarbæjar fyrir nemendur
með verulegan hegðunar- og aðlögunarvanda, félags- og tilfinningaleg
vandamál og fjölskyldur þeirra. Hann er tímabundið úrræði sem tekur
við þegar reynt hefur verið til þrautar að mæta þörfum nemandans í
hverfisskóla.
Sjálfstætt starfandi sérfræðingar og fagaðilar
eru t.d. barna- og
unglingageðlæknar, barnalæknar, sálfræðingar, fjölskylduráðgjafar,
félagsráðgjafar, geðhjúkrunarfræðingar, listmeðferðarfræðingar, sér-
kennarar, iðjuþjálfar, námsráðgjafar og heyrnar- og talmeinafræðingar.
Barna- og unglingageðdeild
Landspítalans, Fjórðungssjúkrahús
Akureyrar og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Þangað er vísað
alvarlegum tilfellum eftir að reynt hefur á vægari úrræði í nærþjón-
ustu. Tilvísunar er þörf á öllum stöðum.
Meðferðarstofnanir á vegum Barnaverndarstofu
eru
meðferðarúrræði sem barnaverndarnefndir sveitarfélaga geta vísað til
þegar um er að ræða alvarleg tilfelli er varða barnaverndarmál
og önnur félagsleg úrræði hafa verið fullreynd.
Samstarf skóla og heimilis
Farsælt samstarf heimila og skóla er ríkur þáttur í að styrkja námslega
og félagslega aðlögun nemanda með ADHD í skólanum enda
sameiginlegt verkefni foreldra og kennara að styðja barnið í gegnum
skólagönguna og undirbúa það undir lífið. Kennarar og foreldrar þurfa
að standa saman að því að setja barninu raunhæf markmið sem allir
eru sáttir við og framfylgja má bæði í skóla og heima.
Skapist togstreita í samskiptum heimilis og skóla hefur það
óhjákvæmilega áhrif á líðan barnsins og framfarir þess. Foreldrar
kunna að efast um að skólinn hafi tök á að mæta þörfum barns síns
og kennarar hafa ef til vill ekki alltaf nægan skilning á þeim vanda
sem foreldrar geta staðið frammi fyrir heima og veldur þeim áhyggjum.
Kennararnir þekkja barnið aðeins í skólanum. Komi upp ágreiningur
er brýnt að bregðast skjótt við, greina vandann og leita leiða til að leysa
hann; athuga þarf hvernig laga má aðstæður, bæði í skóla og á heimili,
betur að þörfum barnsins með hliðsjón af ADHD einkennum þess.
63
Oft hjálpar að fá fagfólk frá sérfræðiþjónustu skólaskrifstofa eða
sveitarfélaga, eða aðra fagaðila með sérþekkingu á ADHD, til að að-
1...,39,40,41,42,43,44,45,46,47,48 50,51,52,53,54,55,56,57,58,59,...67