33
orðinna eða hlátur skólafélaga þegar hann brýtur reglur eða er vísað út
úr kennslustund.
Með margvíslegum hvatningarkerfum er hægt að veita viðurkenn-
ingu eða umbun samstundis, ýmist til einstakra nemenda, nemenda-
hópa eða heilla bekkja. Hugmyndin með hvatningarkerfum er að með
viðeigandi hegðun eða frammistöðu ávinni nemendur sér réttindi eða
annað sem þeim þykir eftirsóknarvert. Ef þessi leið er valin verða kröf-
ur að vera raunsæjar, sanngjarnar og viðráðanlegar fyrir þá sem í hlut
eiga. Stundum getur hentað að gera skriflegan samning á milli kennara,
nemanda og foreldra um hegðun sem á að bæta, hvernig fylgst verður
með framförum og hvaða umbun er í boði. Æskilegt er að samvinna
sé á milli heimilis og skóla um þá umbun sem er gefin. Endurgjöf þarf
að vera jákvæð og uppbyggileg og hrós ávallt í fyrirrúmi. Þegar at-
hyglin beinist að öllum bekknum er æskilegt að nemendur taki þátt í að
ákveða hvaða ávinningur eða réttindi fylgja bættri hegðun og geta gert
skólagönguna skemmtilegri. Ýmsar leiðir eru svo færar til að fylgjast
með hvernig miðar í rétta átt.
Hópur eða lið fær stig sem gefin eru fyrir tiltekna hegðun eins og
ástundun, samvinnu, hversu vel gengur að koma sér að verki og
skipta um viðfangsefni.
Baunir í krukku. Venjulega notað fyrir yngri bekki og fer þannig fram
að þegar kennari sér að allir vinna vel setur hann baun í krukku
og þegar kominn er tiltekinn fjöldi bauna í krukkuna fær bekkurinn
umbun.
Ýmsar leiðir geta virkað sem hegðunarmótandi hvatningarkerfi fyrir
einstaka nemendur. Hér eru nefnd nokkur dæmi:
Hegðunarkort. Útbúa má kort þar sem merkt er við þegar hegðun
er í samræmi við ákveðin viðmið. Þegar kortlagningu lýkur og í ljós
kemur að samræmi er á milli markmiða og hegðunar fær nemandinn
umbun.
Valin eru hegðunaratriði sem þarf að bæta, ekki of mörg. Æskileg
hegðun er skilgreind og kortinu er skipt eftir kennslugreinum, tíma-
bilum yfir daginn eða eftir svæðum í skólanum. Kennari fylgist með
og merkir inn á kortið. Umbun er veitt í lok hverrar kennslustundar, í
lok skóladags eða vikulega eftir því hvað við á.
Ýmis gögn eru til þess fallin
að hjálpa nemendum til að
átta sig á hegðun sinni og tjá
sig um tilfinningar, hugsanir
og upplifanir. Í
CAT-kass-
anum
eru sjónræn gögn sem
þróuð hafa verið í þessum
tilgangi. Þar á meðal eru
tímatöflur, skipulagstöflur,
hegðunarspjald, andlit sem
sýna mismunandi tilfinningar
o.fl. Nánari upplýsingar á
CAT-kit.com
.
ADHD – Farsæl skólaganga
Námsgagnastofnun 2013
SAmNiNgur*
Nemandi – foreldri – kennari
Nafn:
__________________________________________________________________
gildir frá
________________
til
________________
markmiðmín eru að…
____________________________________________________________
____________________________________________________________
____________________________________________________________
Til þess að ná þessummarkmiðum þarf ég að…
____________________________________________________________
____________________________________________________________
____________________________________________________________
Til þess að hjálpamérætlar
mammaað_____________________________________________
pabbiað_______________________________________________
kennarinnminnað_______________________________________
_________________________________
Undirskriftnemanda
_________________________________ _________________________________
Undirskriftforeldra
Undirskriftkennara
*Gerðurísamvinnuviðnemandaogforeldra,t.d.íforeldraviðtali.Nemandigeturþurftaðstoðviðaðskrá.
markmið
1
1...,25,26,27,28,29,30,31,32,33,34 36,37,38,39,40,41,42,43,44,45,...67