46
ADHD samtökin
starfa á landsvísu. Þau eru til stuðnings börnum
og fullorðnum með ADHD, fjölskyldum þeirra og öllum sem tengjast
einstaklingum með ADHD. Þar er unnið öflugt fræðslustarf, gefið út
fræðsluefni um ADHD, fjölþætt fréttabréf og veitt ráðgjöf. ADHD sam-
tökin eru að Háaleitisbraut 13, s. 5811110,
Þroska- og hegðunarstöð heilsugæslunnar
veitir fjölbreytta þjón-
ustu til barna og foreldra vegna ADHD, greiningu, ráðgjöf, meðferð
og námskeið. Þjónusta ÞHS er ætluð fyrir börn til 12 ára aldurs. Hún
tilheyrir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Félags- og skólaþjónusta sveitarfélaga
hefur ýmis félagsleg
úrræði á sínum vegum fyrir notendur þeirrar þjónustu. Þegar
málefni fjölskyldna eru til vinnslu hjá félagsþjónustu er börnum og
unglingum í vissum tilvikum úthlutað persónulegum ráðgjafa eða
stuðningsfjölskyldu til að styrkja félagslega stöðu þeirra eða til að létta
á fjölskyldunni. Auk þess eiga allir rétt á almennri ráðgjöf, stuðningi
og uppeldisráðgjöf fyrir foreldra ásamt námskeiðum bæði fyrir börn
og foreldra hjá félagsþjónustu sveitarfélaga eða hjá sérfræðiþjónustu
grunnskóla. Sérfræðiþjónusta grunnskóla er einnig á vegum
sveitarfélaga.
Sjónarhóll
ráðgjafarmiðstöð er fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir
og veitir ráðgjöf þeim að kostnaðarlausu. Sjónarhóll starfar á landsvísu.
Fjölskyldumiðstöðin
veitir ráðgjöf vegna unglinga og fjölskyldna í
vanda.
Foreldrahús
er á vegum Vímulausrar æsku. Þar eru m.a. í boði nám-
skeið sem hafa nýst vel fyrir börn og unglinga með ADHD. Foreldra-
hús er fyrir allt landið.
Brúarskóli
er grunnskóli á vegum Reykjavíkurborgar fyrir nemendur
í 4.–10. bekk með alvarlegan geðrænan eða tilfinningalegan vanda,
félags- og hegðunarerfiðleika eða vanda vegna fíkniefnaneyslu og/eða
afbrota. Starfsemin skiptist í kennslusvið og ráðgjafarsvið sem þjónar
jafnframt almennum grunnskólum í Reykjavík.
1...,38,39,40,41,42,43,44,45,46,47 49,50,51,52,53,54,55,56,57,58,...67