38
Kennsla unglinga með ADHD – nokkur ráð
Hér að framan hefur verið bent á ýmis lykilatriði sem snerta nám og
kennslu barna með ADHD. Flest af því sem þar kemur fram gildir
jafnframt um unglinga. Ástæða er þó til að huga sérstaklega að
ákveðnum atriðum þegar nemendur eru komnir á unglingsár. Þótt þeir
hafi vissulega þroskast og elst eru þeir jafnframt að ganga í gegnum
breytingaskeið sem hefur mismunandi áhrif á hvern og einn. Eftir-
farandi atriði er gagnlegt að hafa í huga varðandi unglinga:
Lestur – lesskilningur
. Skoða bók vel áður en lestur hefst. „Hvað
veit ég um efnið?“ Við lestur er áhersla á að greina aðalatriði og velta
fyrir sér spurningum eins og
hver, hvað, hvar, hvenær, hvers vegna
?
Gagnlegt getur verið að gera skýringarmyndir eða hugarkort, nota má
til þess gerð forrit, sjá viðauka. Eftir lestur er mikilvægt að rifja upp það
sem lesið var.
Á unglingastiginu er ekki síður ástæða til en á yngri stigum að hafa
tvö sett af bókum
, heima og í skóla, og kaupa inn nóg af öðrum
skólagögnum sem vilja gleymast og týnast.
Fræðsla um ADHD
getur hjálpað unglingum með ADHD til að
átta sig á hvaða áhrif einkennin geta haft á þá náms- og félagslega.
Traust fræðsla styrkir gjarnan sjálfsmynd þeirra og unglingar sem
njóta hennar eru líklegri en aðrir til að búa yfir nauðsynlegri færni til
sjálfsbjargar. Fræðsla getur einnig komið í veg fyrir að unglingurinn trúi
að vandi hans stafi af eigin heimsku, leti eða af því að hann leggi ekki
nógu hart að sér.
53
Æskilegt er að
fræðsla sé almenn og sett fram í þriðju persónu
,
varast þarf gagnrýni og alhæfingar. Dæmi um framsetningu gæti
verið: „Mörgum nemendum með ADHD hættir til að gleyma að vinna
heimaverkefni. Gæti það átt við um þig? Ef til vill getum við hjálpað
þér með það. Hvað heldur þú að geti hjálpað þér?“ Koma síðan með
nokkrar tillögur.
Mikilvægt er að nota
„ég-skilaboð“
í stað „
þú-skilaboða
“ sem hafa
gjarnan neikvæðan tón og eru ásakandi. Til dæmis „Þú fylgist ekki
nógu vel með. Þú hefur ekki gert heimaverkefni í marga daga.“ Þess í
stað má segja: „Ég hef áhyggjur af því að þú hefur ekki skilað heima-
verkefnum. Ég veit að þú vilt standa þig vel. Hvað getum við gert til að
hjálpa þér að ljúka heimaverkefnum á tilskildum tíma?“ Ef nemandinn
hefur ekki hugmyndir sjálfur má koma með tillögur.
Umfjöllun um reiðina
getur hjálpað unglingum með ADHD að átta
sig á hver kveikjan er að reiðiköstum þeirra (ef þau eru fyrir hendi)
Á vefnum
Námstækni
og í
kverinu
Náðu tökum á náminu
er bent á gagnleg lestrarráð og
ýmis atriði sem auðvelda
nemendum að skipuleggja námið.
Í lífsleikninámsefninu
Ertu?
og
Í sátt og samlyndi
er m.a.
fjallað um tilfinningar eins og
reiði, samskipti, ég-boð, innsæi,
ábyrgð o.fl.
1...,30,31,32,33,34,35,36,37,38,39 41,42,43,44,45,46,47,48,49,50,...67