30
að fagmennsku sinni og forðast að taka framkomu og athugasemdir
nemenda persónulega. Ástæðulaust er þó að draga dul á að persónu-
legir þættir geta vegið þungt í samskiptum kennara og nemenda.
Góð bekkjarstjórnun helst í hendur við góða kennsluhætti. Kennsl-
an þarf að vekja áhuga nemenda, þeir þurfa að geta tengt sig við við-
fangsefnin og sjá tilgang í þeim. Enn fremur er mikilvægt að nemendur
hafi yfirsýn yfir verkefnin og viti ávallt hvað á að gerast næst.
Við ákveðnar aðstæður geta líkur á óæskilegri hegðun nemenda
aukist. Þetta getur tengst vissum stöðum eða tíma dagsins, sérstökum
viðfangsefnum eða persónum, þ.á m. skólafélögum, og er að sjálfsögðu
einstaklingsbundið. Börnum með ADHD reynist oft erfitt að takast á
við breytingar og kringumstæður þar sem hlutirnir eru ekki í föstum
skorðum eða undir stjórn fullorðinna. Sem dæmi má nefna frímínútur,
máltíðir í matsal, aðstæður í búningsherbergjum og á salernum og í
vissum sérgreinatímum. Mikilvægt er að fylgjast með líðan og hegðun
nemenda við slíkar aðstæður og freista þess að fyrirbyggja óæskilega
hegðun ef hætta er á að hún geti komið upp. Enn fremur þarf að vera
vel vakandi ef nemandi sýnir merki um uppnám, vanmátt, reiði, pirring
eða er við það að missa stjórn á sér og grípa þá inn í samstundis.
Ávallt skal hafa hugfast að aðgreina nemandann frá hegðuninni og
muna að það er hegðunin sem er erfið, dæmi um leiðsögn væri að
segja: nú ertu ekki að sýna góða hegðun, í stað þess að segja mikið ertu
erfið(ur).
Kringumstæður og atriði sem geta kallað á óæskilega hegðun:
Umhverfi eða aðstæður sem nemanda þykja óþægilegar. Mikill
hávaði, gangar, matsalur, leikvöllur, búningsklefar eða aðrir staðir þar
sem skortur er á umgjörð, skýrum ramma eða stjórnun. Viðfangs-
efni, viðburðir eða tilteknar námsgreinar. Ákveðið vinnulag eins og
hópumræður, samvinnuverkefni þar sem margir þurfa að deila sömu
námsgögnum, löng verkefni eða verkefni sem nemandinn ræður illa
við. Fyrirvaralausar breytingar.
Líkamleg vanlíðan eins og svefnleysi, þreyta eða svengd.
Kröfur um tiltekna frammistöðu eða færni eins og að tala fyrir framan
bekkinn, sitja kyrr í sæti sínu, lesa upphátt, bíða eftir að röðin komi að
sér o.s.frv.
1...,22,23,24,25,26,27,28,29,30,31 33,34,35,36,37,38,39,40,41,42,...67