29
Námsmat
Huga þarf sérstaklega að því að nemendum með ADHD séu sköpuð
kjörskilyrði til að sýna fram á þekkingu sína þegar námsmat eins og
próf er á döfinni. Nauðsynlegt er að huga vel að eftirtöldum atriðum:
Kenna próftækn
i og gefa nemendum, sem þess þurfa vegna
takmarkaðs úthalds, kost á að taka próf í lotum með hvíld á milli,
jafnvel að skipta próftöku á milli daga. Sumum nemendum með
ADHD dugar að fá lengdan próftíma.
Reynst getur hjálplegt að skipta námsefni í fleiri
smápróf
.
Gefa kost á
munnlegum prófum
eða „ritara“ í prófi og
tölvuútskriftum.
Hjálpað getur að
lesa spurningar með eða fyrir nemanda
til
að fyrirbyggja misskilning.
Krossapróf og eyðufyllingarpróf
geta hentað nemendum með
ADHD betur en opnar spurningar.
Láta námsmat fremur byggjast á
verkefnavinnu
en skriflegum
prófum. Þetta á einkum við námsgreinar eins og samfélagsfræði,
náttúrufræði, sögu, bókmenntir o.fl. Skert vinnsluminni veldur því að
nemendur með ADHD eiga erfitt með að leggja á minnið aðalatriði
í lesnum texta. Með þessu móti má koma í veg fyrir prófkvíða.
Hvetja nemendur með ADHD til að
nota krassblöð við próftöku
þar eð krass og krot getur losað um spennu.
Hægt er að koma til móts við nemendur með ADHD með því að
gefa þeim kost á að
endurtaka próf
í greinum sem þeir eru mjög
slakir í. Sama á við þegar nemendur skila verkefnum of seint. Þá þarf
að hugleiða hvort rétt sé að gefa þeim færi á að bæta fyrir það með
einhverjum hætti.
Stuðningur við hegðun og atferlismótun
Lykillinn að góðri bekkjarstjórnun felst í að ná jákvæðu og vingjarnlegu
sambandi við nemendur. Sýni kennarar börnum með ADHD skilning,
festu, samkennd og þolinmæði er líklegt að góður árangur náist.
Kennari þarf ávallt að vera sér meðvitaður um að hann er fyrirmynd
barnsins. Börn leggja venjulega hart að sér og sýna samstarfsvilja til að
geðjast þeim sem þeim líkar við, treysta og virða. Þótt lögð sé áhersla
á persónuleg tengsl nemenda og kennara verða kennarar ávallt að gæta
1...,21,22,23,24,25,26,27,28,29,30 32,33,34,35,36,37,38,39,40,41,...67