28
Námstækni – nokkur góð ráð
Þjálfa
vinnsluminni
, t.d. með því að tengja saman orð og myndir,
með sjónrænum stikkorðum, spilum og tölvuleikjum, sjá vefslóðir á
bls. 52.
Kenna
minnistækni
til að auðvelda nemanda að muna og rifja upp
námsefni. Tengja nýjar upplýsingar við fyrri þekkingu, sjá vefslóðir á
bls. 52 og 53.
Kenna
skipulagningu
og benda á gögn sem gagnast í því skyni
eins og að nota lausblaðamöppur, minnisbók, áherslupenna, tölvur,
farsíma o.fl.
Kenna
námstækni
, svo sem að skrifa á spássíu, strika undir eða gera
hring um lykilatriði, nota mismunandi liti til að greina atriði (nöfn,
staðarheiti, ártöl), glósa (t.d. skipta blaði í tvennt og hafa aðalatriði
vinstra megin og útskýringar hægra megin), skammstafa.
Leyfa
fjölbreytni í verkefnaskilum
, að skila munnlega eða verklega,
skila hljóðupptökum svo eitthvað sé nefnt. Nemendum með ADHD
hættir til að týna verkefnum og því getur verið gott að eiga þau vistuð
á tölvu.
Nota
hjálpargögn
sem auðvelda nemanda að muna, svo sem
margföldunartöflur, orðalista, hugtakakort og límmiða til að skrifa á
hugmyndir áður en þær gleymast.
Kenna
sjálfshjálparleið í þrepum
sem felst í því að áætla, forgangs-
raða, tímasetja og fylgja síðan áætluninni. Gott er að gera tímalínu og
tímasetja hvern áfanga fram að lokaskiladegi.
Vikan: ______
Verkefni: Enska: bls. 10–15, stærðfræði: bls. 8–12, íslenska: Sögur og verkefni
Áætlun
1. dagur
Lokið 2. dagur
Lokið 3. dagur
Lokið 4. dagur
Lokið 5. dagur
Lokið
Enska 10–11
kl. 17-18
Enska 12
kl. 17–17.30
Enska
13 og 14
kl. 16–16.45
Íslenska
Saga A
kl. 17–17.45
Íslenska
Saga B
og verkefni
kl. 17–17.45
Stærðfræði
bls. 8–9
kl. 17:45–
18:30
Stærðfræði
bls. 10 og 11
kl. 17–17:30
Stærðfræði
bls. 12
kl. 18–18:30
Enska
Verkefni 15
kl. 18–18:30
Dæmi um þrepaskipta áætlun.
Oft er auðveldara fyrir nemendur
að takast á við heimavinnu ef
henni er skipt í lotur.
ADHD – Farsæl skólaganga
Námsgagnastofnun 2013
HeimAviNNA – áætluN
Nafn:
__________________________________________
Dagetning:
_________________
tími sem égætla að nota í heimavinnuna: _____________________
lota 1
Það sem égætla að gera: _____________________________________________
___________________________________________________________________
5mínútna hlé! Þáætla ég að ______________________________
lota 2
Það sem égætla að gera _________________________________________________
______________________________________________________________________
5mínútna hlé! Þáætla ég að ______________________________
lota 3
Það sem égætla að gera _______________________________________________
_____________________________________________________________________
5mínútna hlé! Þáætla ég að ______________________________
Þegar ég hef lokið öllummarkmiðummínumætla ég að
_________________________________________________
_________________________________________________
?
4
1...,20,21,22,23,24,25,26,27,28,29 31,32,33,34,35,36,37,38,39,40,...67