23
borð. Hjálpað getur að afmarka vinnupláss með límbandi á borðplötu
eða gólfi.
Útbúa má sérstaka aðstöðu í skólastofu,
afmarkað og rólegt svæði
(t.d. með gólfmottu og mjúkum sessum), sem allir nemendur geta
notað, ekki aðeins nemendur með sérþarfir. Nemendur geta farið
þangað og unnið ef þeir vilja fá algjört næði.
Mikilvægt er að nemendur hafi
sérstakan stað fyrir gögn og
verkefnaskil
. Merkja þarf greinilega hillur, skúffur/bakka, möppur
o.s.frv. Oft getur hjálpað að aðgreina námsgreinar með lit, t.d. má
geyma námsgögn og bækur í íslensku í rauðri teygjumöppu og
merkja með sama lit á stundatöflu og þann stað sem íslenskuverkefni
eiga að vera. Ef nemendur kjósa að vera með allar bækur og
námsgögn í skólatöskunni til að gleyma þeim ekki heima eða í
skólanum ber að virða það.
Leitast skal við að
draga úr sjónrænu og hljóðrænu áreiti
eftir því
sem kostur er; til þess má m.a. nota skilrúm en einnig má minnka
eða slökkva ljós öðru hvoru til að skapa ró og næði. Tónlist getur
stundum skapað róandi andrúmsloft. Það hjálpar oft nemendum með
ADHD að hlusta á tónlist með heyrnartólum við vinnu og próftöku.
Sumum finnst einnig gott að vera með húfu, hettu eða buff á höfðinu
til að verjast áreiti eða nota heyrnarhlífar.
Aðlögun náms og kennslu
Við aðlögun náms- og kennsluaðferða þarf að taka mið af aldri og
þroska þess barns sem í hlut á hverju sinni. Þess ber að geta að barn
með ADHD getur haft góðan skilning á náminu, þ.e. inntaki námsins,
Gildi sjónrænna
vísbendinga:
Nemandi þarf ekki
eingöngu að reiða sig á
talað mál.
Auka sjálfstraust og
sjálfstæði.
Draga úr þörf fyrir
stuðningsfulltrúa.
Draga úr óróleika.
Dæmi um hentugt skipulag í
skólastofu fyrir nemanda með
ADHD.
1...,15,16,17,18,19,20,21,22,23,24 26,27,28,29,30,31,32,33,34,35,...67