26
Slík tímastjórnun á einkum við verkefni sem vinna á yfir tiltekinn
tíma en hentar einnig við vinnu í kennslustund, einkum fyrir yngstu
nemendurna.
Hafa
verkefnablöð skýrt uppsett
, lífleg og myndræn. Verkefni með
eyðufyllingum og krossaspurningum henta vel mörgum nemendum.
Leitast við að draga úr skriftarkröfum með því að fækka opnum spurn-
ingum. Ef svara á spurningum er æskilegt að hafa pláss fyrir svör á
sama blaði.
Stroka ekki of fljótt út
skrifleg fyrirmæli á töflu heldur leyfa þeim að
standa.
Gæta þess að
markmið
hópverkefna sé skýrt, orðalag ljóst og að
nemendur fái tíma til að hugsa sig um og ráðfæra sig við sessunaut
áður en hópumræður fara í gang.
Skrá heimanám í Mentor
til að auðvelda foreldrum að fylgjast með.
Kynna fyrir foreldrum kennsluáætlun, námsleiðarvísa og upplýsingar
um langtímaverkefni, skiladaga verkefna og prófdaga í byrjun annar.
Nauðsynlegt getur verið að endurtaka eða minna á á miðri önn.
Í vissum tilvikum getur hjálpað að hafa
tvö sett af kennslubókum
,
annað í skólanum og hitt heima þar sem börnum með ADHD hættir
til að gleyma og týna skóladótinu sínu. Jafnframt má benda foreldrum
á að gott er að eiga líka nóg af skriffærum.
Reynst getur vel að barnið fái
stuðning við heimavinnu í skólanum
,
sérstaklega ef foreldrar eiga erfitt með að aðstoða barnið við
heimanám.
Gæta þess að börnin fái að
njóta sinna sterku hliða
, fela þeim hlut-
verk eins og að leiðbeina sér yngri nemendum, séu þau sérstaklega
góð í einhverju, eða taka að sér verkefni sem þau ráða við, t.d. að
hjálpa húsverðinum, kennaranum o.s.frv. Slík verkefni geta bæði veitt
gleði og styrkt sjálfsmyndina.
Byrjun kennslustundar
Hljóðmerki gefið um að kennslu-
stundin sé byrjuð.
Viðfangsefni skráð á töflu.
Skýrt frá hvað á að gera, hvaða
gögn á að nota og hverju á að skila.
Augnsambandi náð við nemanda
með ADHD.
Kennslustundin
Áhersla á skýr fyrirmæli og sjónrænar
leiðbeiningar.
Nem. fær að vinna í lotum með
stuttum hléum.
Merki eins og snerting á öxl, gulur miði
á borðið, til að halda nem. að verki.
Nem. fær e-ð til að handfjatla, t.d.
lítinn svampbolta, til að losa um
spennu.
Nem. ekki látinn leysa flókin verkefni
fyrir framan aðra.
Lok kennslustundar
Farið yfir helstu atriðin.
Ef sett er fyrir verkefni eru
a.m.k. tveir nemendur beðnir að
endurtaka hvað á að gera og loks
bekkurinn í kór. Líka skrifað á töflu.
Skýrt tekið fram hvað á að fara með
heim.
Dæmi um skipulag kennslustundar sem tekur mið af þörfum nemenda með ADHD.
1...,18,19,20,21,22,23,24,25,26,27 29,30,31,32,33,34,35,36,37,38,...67