22
Skipulag náms og skólagöngu barna með ADHD þarf að ná til þriggja
þátta. Þeir eru:
Aðlögun náms- og kennsluaðstæðna
Aðlögun náms og kennslu
Stuðningur við hegðun og atferlismótun
Hér á eftir verður fjallað nánar um þessa þrjá þætti. Hafa skal í huga
að flest sem er nefnt nýtist vel í kennslu allra nemenda, hvort sem
þeir eru með ADHD eða ekki. Mismunandi er hvað hentar einstökum
kennurum og nemendum. Aðstæður í skólum eru ólíkar og það sem
gengur vel í einum skóla kann að vera óframkvæmanlegt í öðrum. Hér
er því um að ræða hugmyndabanka en ekki forskrift eða fyrirmæli.
Fyrst verður hugað að kennsluaðstæðum, síðan kennsluaðferðum og
loks stuðningi við hegðun.
Aðlögun náms- og kennsluaðstæðna
Margt er hægt að gera varðandi skipulag aðstæðna til að auka líkurnar
á að nemendum með ADHD nýtist kennslan sem best og þeir geti
einbeitt sér eins vel og unnt er. Mikilvægast er að skapa andrúmsloft
vellíðunar, umburðarlyndis og öryggis. Börn sem óttast hvorki mistök
né það að vera klaufaleg eru líklegri en ella til að vera opin og virk og
taka þátt í verkefnum og leik. Fastar vinnuvenjur og einfaldar reglur
skipta miklu máli.
Skipulag í skólastofu
Nemanda með ADHD hentar venjulega best að
sitja nálægt
kennaranum
. Við það fæst öryggi og kennarinn á auðvelt með
að fylgjast með nemandanum og veita honum leiðsögn. Best er
að sessunautar séu góðar fyrirmyndir og að áreiti sé sem minnst í
kringum nemandann. Það getur einnig hjálpað nemendum með
ADHD að sitja þannig að þeir hafi yfirsýn yfir bekkinn og viti hvað
er að gerast. Þá er minni hætta á því að það hafi truflandi áhrif á þá.
Gefa má nemanda kost á að
sitja einn við borð
. Nemanda með
ADHD hentar yfirleitt ekki að sitja andspænis öðrum nemendum.
Sumum getur hentað að vinna liggjandi á gólfinu eða standandi við
1...,14,15,16,17,18,19,20,21,22,23 25,26,27,28,29,30,31,32,33,34,...67