18
(Hagstofa Íslands, 2011). Miðað við að tíðni ADHD sé um 7,5% að
meðaltali má ætla að u.þ.b. 330 börn í hverjum árgangi geti verið með
ADHD. Á aldursbilinu 0–18 ára væru það um 6000 börn.
Sum börn með ADHD eru ólíklegri til að fá greiningu en önnur.
Börn með ADHD þar sem athyglisbrestur er ráðandi einkenni en þau
eru hvorki ofvirk né árásargjörn. Þau sitja gjarnan hljóð í sætum sínum
og því er líklegt að ekki komi í ljós hamlandi áhrif ADHD einkenna fyrr
en á unglingastiginu þegar þau standa ekki undir þeim kröfum sem
gerðar eru.
Stelpur með ADHD eru ólíklegri til að vekja athygli
kennara því þær eru síður árásargjarnar og sýna síður
truflandi hegðun en strákar með ADHD. Almennt virðast
stelpur vera hlýðnari og sækjast meira eftir viðurkenningu
frá kennurum. Þær leggja oft á sig mikla vinnu til að ljúka
verkefnum og heimanámi. Einkenni þeirra þurfa að vera
mun alvarlegri en hjá strákum til að þær fái greiningu.
Mörg bráðger börn finna leiðir til að bæta fyrir skerta námsgetu vegna
ADHD einkenna þar til á unglingastigi eða framhaldsskólastigi þegar
álagið og kröfurnar aukast til muna.
Börn með annað móðurmál en íslensku.
Börn sem hafa greinst með námserfiðleika eins og til dæmis sértæka
lestrarerfiðleika. Hætta er á að þegar barn er komið með eina
greiningu sé ekki kannað hvort um fleiri raskanir geti verið að ræða.
Ef barn hefur greinst með ADHD er brýnt að hafa eftirfarandi í huga.
Foreldrar bera meginábyrgð á velferð, uppeldi og umönnun barna
sinna. Eftir að barn hefur greinst með ADHD ættu kennarar að benda
foreldrum á að leita sér þekkingar og sækja fræðslu og námskeið um
röskunina og mögulegar meðferðarleiðir til að geta tekið vel upplýstar
ákvarðanir um aðgerðir og úrræði.
Góð samvinna og samskipti allra sem koma að máli barnsins er
lykilatriði. Þá er átt við foreldra og kennara, ásamt öðru starfsfólki
skóla, fulltrúa sérfræðiþjónustu sveitarfélaga og eftir atvikum heilsu-
gæslu- og/eða geðheilbrigðisstofnana.
Í gegnum skólagönguna getur barnið þurft margvíslegan stuðning
á mismunandi tímabilum bæði innan og utan skóla, meðferð
sérfræðinga í heilbrigðisþjónustu og félagsleg úrræði.
Sérkennsla og annar námslegur stuðningur eru veigamiklir þættir í því
að styrkja námslega og félagslega stöðu barna með ADHD.
1...,10,11,12,13,14,15,16,17,18,19 21,22,23,24,25,26,27,28,29,30,...67