15
Hegðunarröskun – um 10–25% barna
Oft koma einkenni hegðunarröskunar fram í því að reyna að brjóta reglur
án þess að vera gripin(n). Börn með hegðunarröskun geta átt til að sýna
árásargirni gagnvart fólki eða dýrum, eyðileggja hluti, ljúga eða stela frá
öðrum, strjúka, skrópa í skóla og virða ekki reglur um útivistartíma. Börn
með bæði ADHD og hegðunarröskun eru líkleg til að eiga í lestrarerfið-
leikum og einnig félags- og tilfinningalegum erfiðleikum. Auk þess eru
þau í áhættu gagnvart vímuefnamisnotkun.
29
Áráttu-þráhyggjuröskun – um 10–30%
Áráttu-þráhyggjuröskun lýsir sér í endurteknum truflandi hugsunum
(þráhyggja) og/eða endurteknum þrálátum athöfnum sem trufla
daglega virkni (árátta), til dæmis hreinlætisárátta eða söfnunarárátta.
Sumir með áráttu-þráhyggju virðast festast í þrálátum hugsunum um
eitthvað sem þeir hafa lesið, skrifað, rætt um eða hugsað og þeim er
nánast ókleift að halda áfram og færa athyglina aftur að því sem þeir
voru að gera og ljúka því. Einkenni áráttu-þráhyggjuröskunar geta enn
fremur haft þau áhrif að hugsanaflæðið verður endurtekið fyrir truflun
af þörf fyrir að framkvæma ákveðna athöfn með ákveðnum hætti.
30
Sértæk þroskaröskun á hreyfisamhæfingu – um 50%
Röskun á samhæfingu hreyfinga eða klaufska er algeng fylgiröskun
ADHD. Hún getur verið mjög hamlandi í sumum tilvikum og sum börn
geta þurft iðjuþjálfun eða sjúkraþjálfun. Öðrum börnum með vægari
frávik í hreyfiþroska getur nægt að umhverfið sýni þeim skilning og
umburðarlyndi og veiti þeim stuðning.
31
Tourette heilkenni – um 7%
Áætlað er að um 7% einstaklinga með ADHD séu með Tourette en
um 60% einstaklinga með Tourette séu með ADHD. Tourette ein-
kennist aðallega af hreyfikippum og hljóðkækjum sem eru endurteknir,
skammvinnir, ótaktvísir og snöggir. Kækirnir geta aukist við þreytu og
taugaspennu.
32
Foreldrar, kennarar og aðrir þurfa að vera vakandi fyrir einkennum
fylgiraskana þegar barn með ADHD kemst á unglingsár, sérstaklega
ef almenn úrræði og meðferð skila ekki lengur tilætluðum árangri. Á
þessum árum eykst hætta á að einstaklingur með ADHD þrói með sér
hegðunarerfiðleika, svo sem mótþróaþrjóskuröskun eða hegðunar-
röskun. Hátt hlutfall unglingsstúlkna með ADHD glímir einnig við
kvíða eða þunglyndi. Þær láta gjarnan lítið á sér bera, eins og áður hefur
verið vikið að, og því er hætt við að kennarar taki ekki sérstaklega eftir
þeim.
33
1...,7,8,9,10,11,12,13,14,15,16 18,19,20,21,22,23,24,25,26,27,...67