13
Að hafa stjórn á tilfinningum eins og reiði, áhyggjum, vonbrigðum,
löngunum og viðbrögðum við mótlæti. Þeim reynist erfitt að ýta
tilfinningum til hliðar og láta þær ekki trufla sig við vinnu.
Að muna og halda utan um atriði í minni sínu og kalla fram
upplýsingar. Löngu liðnir atburðir eru þeim oft ofarlega í minni en að
muna hvar þeir lögðu eitthvað frá sér, hvað einhver sagði, hvað þeir
voru að lesa og hvað þeir ætluðu að segja getur þvælst fyrir þeim.
Að vakta sjálfan sig og hafa stjórn á eigin gerðum og viðbrögðum.
Margir með ADHD, jafnvel þeir sem ekki eru ofvirkir, segjast oft
ekki hafa stjórn á hegðun sinni. Þeir geta verið hvatvísir í tilsvörum,
athöfnum eða hugsun, of fljótir á sér og draga gjarnan rangar
ályktanir. Þeir lesa ekki rétt í aðstæður, átta sig ekki á þegar aðrir eru
forviða, særðir eða pirraðir vegna einhvers sem þeir sögðu eða gerðu,
breyta því ekki framkomunni til samræmis við viðbrögð annarra.
22
Fylgiraskanir
Vitað er að um 50–70% grunnskólabarna með ADHD greinast
jafnframt með eina eða fleiri fylgiraskanir. Þetta getur flækt bæði
greiningu og meðferð þar sem ADHD-einkennin skarast við einkenni
sumra þeirra. Til þess að rétt meðferð og þjónusta sé veitt er áríðandi
að átta sig á þessari samsetningu sem allra fyrst og fyrirbyggja þannig
að vandinn vaxi.
23
Samkvæmt rannsóknum eru algengustu fylgiraskanir
ADHD sem hér segir en prósentutalan gefur til kynna hve margir með
ADHD greinast með fylgiröskunina:
Sértækir
námserfiðleikar
Mótþróaþrjóskuröskun
Svefntruflanir
Kvíðaraskanir
Þunglyndi
Hegðunarröskun
Áráttu-/
þráhyggjuröskun
Sértæk
þroskaröskun á
hreyfisamhæfingu
Tourette heilkenni
1...,5,6,7,8,9,10,11,12,13,14 16,17,18,19,20,21,22,23,24,25,...67