12
huga illa að smáatriðum og gera oft fljótfærnislegar villur
týna oft og gleyma hlutum
truflast auðveldlega af utanaðkomandi áreiti og einnig af áreiti
eigin hugsana
eru gleymin í athöfnum daglegs lífs
Einkenni ofvirkni eru meðal annars að börn og unglingar
eru stöðugt á ferðinni
tala óhóflega mikið
eru með hendur og fætur á sífelldu iði
fara úr sæti í skólastofu eða við aðrar aðstæður þar sem
ætlast er til kyrrsetu
hlaupa um eða príla óhóflega við aðstæður þar sem slíkt á ekki við
eiga erfitt með að vera hljóð við leik eða tómstundastarf
Einkenni hvatvísi eru meðal annars að börn og unglingar
eiga erfitt með að bíða eftir að röðin komi að þeim
í hópvinnu eða leik
grípa fram í eða ryðjast inn í samræður eða leiki
grípa fram í með svari áður en spurningu er lokið
taka óígrundaðar ákvarðanir
framkvæma án þess að hugsa
Í ljósi þess sem að framan hefur verið nefnt hefur ADHD margþætt
áhrif en skert stýrifærni heilans veldur því m.a. að nemendur með
ADHD geta átt erfitt með:
Að koma sér að verki, skipuleggja verkefni, áætla tíma og
forgangsraða. Þeir hafa sterka tilhneigingu til að fresta verki fram á
síðustu stundu.
Að halda einbeitingu og að færa athygli frá einu verkefni á annað.
Þeir truflast auðveldlega, jafnt af áreiti í umhverfi og sínum eigin
hugsunum. Mörgum þeirra getur reynst erfitt að einbeita sér við
lestur, þurfa að lesa oftar en einu sinni sama efnið til að ná tökum á
því og skilja innihaldið.
Að ljúka við verkefni á tilsettum tíma og halda jöfnum vinnsluhraða
vegna úthaldsleysis. Þeir vaða gjarnan úr einu í annað. Margir segjast
geta leyst verkefni sem taka stuttan tíma í vinnslu en eiga mun
erfiðara með verkefni sem taka lengri tíma.
1...,4,5,6,7,8,9,10,11,12,13 15,16,17,18,19,20,21,22,23,24,...67