11
Einkenni ADHD
Hjá sumum börnum eru einkenni ADHD, og þá sérstaklega ofvirkni-
einkenni, augljós strax á leikskólaaldri. Erfitt reynist að fá börnin til að
fylgja einföldum leiðbeiningum og við minnsta mótlæti geta þau verið
fljót að stökkva í burtu eða atast í bekkjarsystkinum. Önnur börn með
ADHD sýna ekki eins hömlulausa hegðun, röskun þeirra birtist fremur
í lakari námsgetu en vitsmunaleg geta gefur tilefni til og kemur jafn-
vel ekki fram fyrr en í 3. eða 4. bekk grunnskóla. Þótt sum börn með
ADHD geti virst hvatvís, sítalandi og eirðarlaus draga önnur sig í hlé
og láta sig hverfa á vit dagdrauma í kennslustundum.
20
Einkenni ADHD taka iðulega töluverðum breytingum með aldri.
Sérstaklega á þetta við um hvatvísi og ofvirkni sem breytist hjá
unglingum og birtist frekar í innri spennu, eirðarleysi og skapstyggð.
Athyglisbrestseinkennin vara hins vegar oft fram á fullorðinsár.
21
Helstu einkennum ADHD má skipta í þrjá flokka, þ.e. athyglisbrest,
ofvirkni og hvatvísi.
Einkenni athyglisbrests eru meðal annars að börn og unglingar
eiga erfitt með að halda athygli við leiki, verkefni og nám
virðast ekki hlusta þegar talað er beint til þeirra
fylgja ekki fyrirmælum til enda og ljúka ekki við verkefni, fresta þeim
eiga erfitt með að skipuleggja verkefni og athafnir, áætla tíma,
forgangsraða og koma sér að verki
forðast viðfangsefni sem krefjast mikillar einbeitingar (til dæmis
heimanám og skrifleg skólaverkefni)
Einkenni ADHD:
Athyglisbrestur
Ofvirkni
Hvatvísi
1...,3,4,5,6,7,8,9,10,11,12 14,15,16,17,18,19,20,21,22,23,...67