9
heilans má líkja henni við stjórnanda sinfóníuhljómsveitar. Hljómsveitin
er skipuð tónlistarfólki en það er í höndum stjórnandans að tryggja að
allir byrji að spila á sama tíma, haldi takti og sama hraða svo að tón-
listin hljómi sem allra best og verkið komist til skila. Hjá einstaklingum
með ADHD virka heilasvæðin vel, sem samsvarar einstökum hljóð-
færaleikurum. Samstillingin er í höndum stjórnandans,
sem samsvarar stýrifærni heilans. Stýrifærnin er
ekki fullþroskuð við fæðingu heldur þroskast
hún með aldrinum eftir því sem heilabörkur
þroskast á svæði framheila.
9
Skert starfsemi
í taugaboðefnakerfi heilans er hluti af orsök
skertrar stýrifærni.
10
Mikilsvert er að kröfur og
væntingar í skólaumhverfi og á heimili taki mið
af því að börn með ADHD standa ekki undir
sömu kröfum og jafnaldrar þeirra þar sem um
1–3 ára seinkun getur verið á þroska til­tekinna
svæða heilans sem viðkoma stýrifærni.
11
Stýrifærni heilans stjórnar samstillingu heilasvæða líkt og hljómsveitarstjóri hljómsveit.
Tímstjórnun
Vinnsluminni
aldur
20 ára
5 ára
Fylgjast með eigin hegðun
Verkáætlun
Skipulag
Stjórnun tilfinninga
Seinkun á þroska heilabarkar hjá börnum með ADHD veldur
skertri stýrifærni í framheila. Á myndinni er þroski heilabarkar
barns með ADHD frá 5–20 ára auðkenndur með bláum lit en
sjá má að við 20 ára aldur er heilabörkurinn enn ekki fullþroska.
1...,2,3,4,5,6,7,8,9,10 12,13,14,15,16,17,18,19,20,21,...67