7
að tala opinskátt og jákvætt um ADHD, sæki fræðslu og dýpki skilning
sinn á röskuninni og eigi farsælt samstarf við fjölskyldur þeirra. Með
því móti reynist auðveldara en ella að koma til móts við þarfir barnanna
og draga úr fordómum sem víða finnast í samfélaginu. Hugmyndaríkar
nálganir, þekking og leikni í að beita fjölbreyttum kennsluaðferðum
eru leiðir til árangurs við kennslu nemenda með ADHD, með öðrum
orðum að vera óragur við að hugsa út fyrir rammann við skipulag
kennslunnar. Með skilningi og traustum stuðningi sem stuðlar að
jákvæðum og uppbyggjandi samskiptum getur barn með ADHD
blómstrað og náð góðum árangri í félagstengslum og námi.
ADHD – orsakir, einkenni og fylgiraskanir
ADHDer alþjóðleg skammstöfun fyrir „AttentionDeficitHyperactivity
Disorder“ eða athyglisbrest og ofvirkni. Til eru læknisfræðilegar
heimildir allt frá árinu 1902 þar sem George Still læknir í London
lýsir einkennum hjá hópi barna sem sýndu ofvirkni, erfiðleika við
einbeitingu og vandkvæði við að hafa viðeigandi stjórn á hegðun sinni.
3
ADHD stafar af röskun á taugaþroska sem lýsir sér með
einbeitingarerfiðleikum, ofvirkni og hvatvísi. ADHD er einn algengasti
Viðhorf til barna og ungmenna með ADHD hefur áhrif á hegðun og aðlögun þeirra.
1,2,3,4,5,6,7,8 10,11,12,13,14,15,16,17,18,19,...67