6
kraft, viðurkenna frávik þeirra í þroska og mæta þeim þar sem þau eru
stödd. Þarft er að minnast þess að börn með ADHD hafa sömu þarfir
og önnur börn fyrir öryggi, ást og umhyggju.
Í stefnunni um skóla án aðgreiningar og í samræmi við grunnskólalög
nr. 91/2008 er gert ráð fyrir að allir nemendur fái kennslu við hæfi. Sami
andi kemur fram í reglugerð um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik-
og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum nr. 584/2010.
Þar er kveðið á um snemmtækt mat á stöðu nemenda, ráðgjöf vegna
námsvanda, félagslegs og sálræns vanda og kennslu við hæfi í skóla án
aðgreiningar. Sérfræðiþjónustan á að styðja við starfsemi og starfsfólk
í leik- og grunnskólum og veita foreldrum stuðning með ráðgjöf og
fræðslu.
Í þessu riti er leitast við að dýpka skilning þeirra sem starfa með
nemendum með ADHD, einkum á grunnskólastigi, og benda á leiðir til
að mæta þörfum nemenda í samstarfi við foreldra og þjónustustofnanir
ríkis og sveitarfélaga.
Viðhorf til nemenda með ADHD
Á undanförnum árum og áratugum hefur mikið verið rætt og ritað um
skólastarf og velferð og heilbrigði barna og ungmenna í skólum. Þetta
ætti ekki að koma á óvart þar sem börn eru í skóla á mestu mótunar-
árum lífsins. Jákvætt viðhorf, skilningur samfélagsins og stuðningur
starfsfólks skóla er nauðsynleg undirstaða uppeldis og náms barna
með ADHD.
1
Sökum hvatvísi er börnum með ADHD hættara við að
lenda í aðstæðum sem erfitt er fyrir þau að koma sér út úr. Að stinga
verkefni eða prófi ofan í tösku og taka með sér heim í stað þess að
skila til kennarans, að hrinda félaga ofan í drullupoll og gefa honum
glóðarauga í gleðiæsingi því hann skoraði mark eru dæmi um aðstæður
sem barn með ADHD getur lent í. Slík atvik geta alið af sér neikvæðar
tilfinningar skólafélaganna í garð barnsins og haft neikvæð áhrif á
sjálfsmynd þess.
Viðhorf til barna með ADHD hefur áhrif á hegðun og aðlögun
þeirra bæði náms- og félagslega.
2
Mikilvægt er að starfsfólk skóla láti sig
málefni þeirra varða innan og utan skólastofunnar, leggi sig fram um
Á vegum ADHD samtakanna
hefur verið tekið saman stutt og
aðgengilegt fræðsluefni (glærur),
ADHD utan kennslu-
stofunnar
. Efnið hentar vel
sem grundvöllur að umræðum á
starfsmannafundum í skólum.
Það er til í mörgum skólum
en einnig má nálgast það hjá
ADHD samtökunum.
1,2,3,4,5,6,7 9,10,11,12,13,14,15,16,17,18,...67