Hvað heldur þú? - klb - page 20

20
Hermína er nýja stelpan í hverfinu. Selma snýr
baki við Völu og fleiri gömlum félögum til að
eyða meiri tíma með nýju vinkonunni.
Óöryggi  er komið upp í sambandi Völu við
Selmu – og má kannski líkja við sambands-
slit hjóna þegar um er að ræða ungmenni.
Óvissan blasir við og áfallið sem fylgir því að
upplifa það sem maður hélt að væri traust og
skothelt væri í raun brothætt og viðkvæmt. Var
Selma að svíkja Völu? Vildi Selma eiga nýju
stelpuna fyrir sig? Vildi nýja stelpan ekki kynn-
ast Völu?
Kaflinn snertir einnig spurninguna um sann-
leikann og áhrif hans á okkur. Hvers vegna
þóttist Selma vera veik? Kannski var hún
raunverulega veik þegar hún talaði við Völu.
Ef Vala hefði ekki farið með foreldrum sínum
í kvikmyndahúsið hefði hún líklega ekki frétt
af því að Selma hefði farið með Hermínu um
kvöldið. Hún hefði því líklega farið með Selmu
um helgina og því aldrei vitað neitt um ósann-
söglina. Hvað ef Selma var raunverulega veik
í maganum. Kannski hringdi Hermína í Selmu
og bauð henni með sér í bíó og Selma ákvað
að fara til þess að fæla nýju vinkonuna ekki
frá sér. Kannski taldi hún að það væri í lagi þar
sem hún var búin að ákveða að fara með Völu
um helgina.
Saga 2 –
Ertu viss um að þú þurfir
á vinum að halda?
1...,10,11,12,13,14,15,16,17,18,19 21,22,23,24,25,26,27,28,29,30,...34
Powered by FlippingBook