Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 25

25
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Norður-Ameríka
• Í kaflanum er fjallað um:
Landslag og náttúrufar
Einkenni álfunnar
Náttúruauðlindir
Atvinnuhætti
Frumbyggja Norður-Ameríku
Bandaríkin
Frelsisstríðið 1775–1783 og Þrælastríðið 1861–1865
Mið-Ameríku
Karíbahafið og eyjar þess
Kúbu
Í upphafi kaflans eru tekin fyrir þau fjögur landslagssvæði sem Norður-Ameríku er skipt í, Vesturfjallgarð-
ana, Kanadaskjöldinn, Slétturnar miklu og Miðhálendið. Einnig er fjallað um lengsta fljót álfunnar, Miss-
issippi og Vötnin miklu á landamærum Bandaríkjanna og Kanada. Heimsálfan nær yfir öll loftslagsbelti
jarðar og eru því gerð skil. Fjallað er um helstu náttúruauðlindir og atvinnuhætti. Sérstök ítargrein er um
frumbyggja Norður-Ameríku og fólksflutninga Evrópuþjóða vestur um haf síðustu aldir. Bandaríkjunum
eru gerð sæmileg skil, m.a. með rammagreinum um ríkin 50, frelsisstríðinu og þrælastríðinu. Mið-Ame-
ríka, Karíbahaf og Karíbahafseyjar fá sína umfjöllun.
Í kennsluleiðbeiningum er einnig að finna sérstaka umfjöllun um
Frumbyggjasamfélög Mið-Ameríku,
Kanada
og
Mexíkó
ásamt verkefnum.
Landslag bls. 83–84
Í grófum dráttum er hér fjallað um landslagssvæðin fjögur; Vesturfjallgarðana, Kanadaskjöldinn,
Slétturnar miklu og Miðhálendið og Appalachiafjöll. Benda má nemendum á að finna einkenni
hvers landslagssvæðis fyrir sig. Upplagt að gera hugtakakort.
Náttúrufar bls. 85
Má leggja áherslu á að N-Ameríka liggur í öllum loftslagsbeltum sem undirstrikar fjölbreytileikann
í náttúrufarinu. Hér má líka rifja upp rammagreinina um
Skýstrokka
bls. 68 í
Um víða veröld – Jörðin
.
Atvinnuhættir bls. 88–89
Enn og aftur er gott að rifja upp atvinnustigin fjögur með nemendum; landbúnað, sjávarútveg,
iðnað og þjónustu.
Í Kanada og Bandaríkjunum eru atvinnuhættir tæknivæddir og þróaðir á öllum stigum. Í Mið-Ameríku
vantar talsvert upp á. Upplagt er að bera saman atvinnuhætti í N-Ameríku við atvinnuhætti í kaflanum á
undan, Afríku. Má setja samanburðinn upp á töflu með nemendum og ræða og láta þá glósa.
Norður-Ameríka
1...,15,16,17,18,19,20,21,22,23,24 26,27,28,29,30,31,32,33,34,35,...72
Powered by FlippingBook