Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 22

22
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Afríka
• Í kaflanum er fjallað um:
Landslag og náttúrufar
Sahara og Sahel
Atvinnuhætti
Náttúruauðlindir
Nýlendustefnuna
Níl og fornminjar
Austur-Kongó
Suður-Afríku
Afríkukaflinn hefst á umfjöllun um fjölbreytt landslag í Afríku. Þar er fjallað um Sigdalinn mikla í Austur-
Afríku, stærstu fljótin, vötnin, fjöllin og eyðimerkurnar. Fjallað er um loftslag og gróðurfar álfunnar, með
sérstaka áherslu á Sahara og Sahel. Fjallað er um helstu náttúruauðlindir og atvinnuhætti. Í kaflanum er
að finna nokkrar rammagreinar m.a. um þjóðgarða og verndun dýra, nýlendustefnu Evrópuríkja í Afríku,
þrælaverslunina og HIV og áhrif sjúkdómsins á mannfjölda og fjölskyldur. Sérstakur ítarkafli er um Níl og
umhverfi hennar og í lok kaflans er fjallað sérstaklega um Austur-Kongó og Suður-Afríku.
Í kennsluleiðbeiningum er einnig að finna sérstaka umfjöllun um
Egyptaland
og
Senegal
ásamt verkefn-
um.
Landslag bls. 61
Hér er gott að leggja áherslu á að nemendur þekki Sigdalinn mikla, Sahara, Níl og Viktoríuvatn. Gott get-
ur verið að láta þá skrifa nokkur örnefni; höf, vötn, fljót, fjöll, eyðimerkur, eyjar o.fl. á útlínukort af Afríku
sem má finna í kennsluleiðbeiningum. Upplagt að gera hugtakakort.
Náttúrufar bls. 62–63
Nemendur átti sig á að svipuðu loftslagi beggja vegna miðbaugs og þ.a.l. svipuðu gróðurfari. Um að
gera að rifja upp í því samhengi kaflann um
Vindakerfi jarðar
í
Um víða veröld –Jörðin
. Áhersla lögð á
stærstu eyðimörk í heimi, Sahara og Sahel-svæðið sem liggur fyrir sunnan Sahara. Á þurrkatímum verður
Sahel eins konar viðbót við eyðimörkina. Á regntíma þrífst þar gróður sem íbúar svæðisins nýta. Sahel
kemst oft í fréttirnar vegna síendurtekinna hörmunga sem stafa m.a. af miklum fólksfjölda á svæðinu.
Atvinnuhættir bls. 64
Gott er að rifja upp atvinnustigin fjögur; landbúnað, sjávarútveg, iðnað og þjónustu.
Í Afríku er landbúnaður langalgengasta atvinnugreinin. Þó að landbúnaður sé mjög víða frumstæður, þá
sérstaklega um miðbik álfunnar er sums staðar að finna stórar vélvæddar bújarðir. Iðnvæðing í álfunni
er takmörkuð og byggir iðnaðurinn aðallega á hráefnavinnslu. Þá er hráefni unnið úr jörðu og flutt út til
annarra landa til frekari vinnslu og verðmætasköpunar. Þessu þyrftu Afríkuþjóðir að snúa við svo verð-
mætasköpun og hagvöxtur verði meiri í álfunni, Afríkubúum til aukinnar hagsældar.
Afríka
1...,12,13,14,15,16,17,18,19,20,21 23,24,25,26,27,28,29,30,31,32,...72
Powered by FlippingBook