Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 28

28
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Suður-Ameríka
Suður-Ameríka
• Í kaflanum er fjallað um:
Landslag og náttúrufar
Amason, regnskóg og fljót
Atvinnuhætti
Náttúruauðlindir
Einkenni álfunnar
Brasilíu
Forna menningu í Perú og Bólivíu
Argentínu
Suður-Ameríkukaflinn hefst á umfjöllun um landslag og náttúrufar líkt og aðrir kaflar. Þar er m.a. fjallað
um Andesfjöll, Atacamaeyðimörkina og Amasonfljótið. Sérstakur ítarkafli er um Amason-svæðið.
Fjallað er um atvinnuhætti og helstu náttúruauðlindir, einkenni álfunnar og helstu orsakir og afleiðingar
af eyðingu skóga. Brasilía og Argentína fá sérstaka umfjöllun og er í þeim köflum að finna tengdar
rammagreinar eins og um baðströndina Copacabana, stækkandi fátækrahverfi í stórborgum, kjötkveðju-
hátíðina og tangó. Í lok Suður-Ameríkukaflans er ítargrein um forna menningu í Perú og Bólivíu.
Í kennsluleiðbeiningum er einnig að finna sérstaka umfjöllun um
Chile
ásamt verkefnum.
Landslag bls. 111–113
Hér er aðal áherslan lögð á hinar þrjár megin jarðmyndanir álfunnar.
• Fornir bergskildir; Brasilíuskjöldur, Gvæjanaskjöldur og Patagóníuskjöldur
• Fellingafjallgarðurinn Andesfjöll
• Setlægðir á milli fyrrnefndra bergmyndana
Auk þess eru aðrar landslags- og jarðmyndanir tilgreindar í lesbók eins og eyjar og eyðimerkur.
Upplagt að gera hugtakakort.
Náttúrufar bls. 113
Það má skoða með nemendum loftslagskortið og skýringarnar með því. Það sem veldur m.a. þessu
loftslagi er hár fjallgarður, kaldur hafstraumur (Perústraumur) og staðsetning í breiddargráðum, sbr.
Amason-regnskógurinn í hitabeltinu. Hér má gera hugtakakort til að safna saman ólíkum þáttum er
snerta náttúrufarið í álfunni.
Amason bls. 114–115
Leggja áherslu á við nemendur að í Amason-lægðinni er stærsta regnskógasvæði heims – u.þ.b.
80 sinnum stærra en Ísland og jafnframt eitt lengsta og vatnsmesta fljót jarðar, Amasonfljótið.
Mikilvægt að ræða við nemendur orsök og afleiðingar skógareyðingar í Amason, út frá t.d. íbúum svæð-
isins, umhverfismálum o.fl. Upplagt er að lesa rammagreinarnar um
Eyðingu skóga
bls. 119 og
Líffræðilegan fjölbreytileika
bls. 120 með ítargreininni um Amason.
1...,18,19,20,21,22,23,24,25,26,27 29,30,31,32,33,34,35,36,37,38,...72
Powered by FlippingBook