Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 19

19
Asía
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Asía
• Í kaflanum er fjallað um:
Landslag og náttúrufar
Ólík svæði Asíu
Ólíkan efnahag og ódýrt vinnuafl
Náttúruauðlindir
Atvinnuhætti
Indlandsskaga
Kína og Þriggja gljúfra stífluna
Asíukaflinn hefst á umfjöllun um landslag þar sem áhersla er lögð á Himalaja-fjallgarðinn, Tíbet-háslétt-
una, hin landluktu vötn og höf og eyðimerkurnar sem liggja um miðbik álfunnar. Í náttúrufarskaflanum
er farið í loftslag og gróðurfar og sérstaklega minnst á monsúnvindana. Í lesbókinni er Asíu skipt í 6
svæði sem hvert um sig er ólíkt hinum. Minnst er á hinar miklu andstæður sem er að finna í álfunni,
ólíkan efnahag og ódýrt vinnuafl. Fjallað er um helstu náttúruauðlindir og atvinnuhætti í Asíu. Sérstök
umfjöllun er um Indlandsskaga og Kína og í lok kaflans er ítargrein um Þriggja gljúfra stífluna.
Í kennsluleiðbeiningum er einnig að finna sérstaka umfjöllun um Sádi-Arabíu, Taíland, Indónesíu og
Japan ásamt verkefnum.
Landslag bls. 39–40
Hér eiga nemendur að fá tilfinningu fyrir fjölbreyttu landslagi í Asíu; hinum mörgu fjallgörðum, Tíbet-
hásléttunni sem kölluð er þak heimsins, eyðimörkum, landluktum vötnum og höfum, eyjaklösum og
stórfljótum sem skipt hafa sköpum í búsetu á svæðinu með frjósömum flóðasléttunum.
Náttúrufar bls. 41
Áhersla lögð á fjölbreytt loftslag og gróðurfar álfunnar, monsúnvindana og monsúnregnið. Í bókinni Um
víða veröld – Jörðin er farið nokkuð ítarlega í monsúnvinda.
Monsúnvindar
Mishitun hins mikla landflæmis Asíu og haf svæðanna
þar fyrir sunnan er orsök monsúnvindanna
(misserisvindanna). Í sumarsólinni hitnar landið,
loftið stígur upp og lágþrýstisvæði myndast.
Þegar loftið stígur upp streymir þangað loft frá
háþrýstisvæðum á hlýjum og rökum hafsvæðunum
í suðri. Þegar rakt loftið stígur og lyftist yfir há fjöll
sem á vegi þess verða þéttist rakinn og fellur í
úrhellisrigningum.
1...,9,10,11,12,13,14,15,16,17,18 20,21,22,23,24,25,26,27,28,29,...72
Powered by FlippingBook