Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 16

16
Maður og náttúra
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Upplagt er að láta nemendur vinna tölfræðiupplýsingar á
Yfirlit og gera úr þeim mannfjöldapýramída. Einnig er áhugavert að skoða mannfjöldaþróun á Íslandi
frá ca. 1850–2050 sem sýnd er í mannfjöldapýramída,
pyramid/man.html
. Gott er að sýna myndskeiðið á skjávarpa, svo hægt sé að stoppa og ræða stórar
breytingar sem verða á mannfjöldapýramídanum. Stórar breytingar verða m.a. við aukið hreinlæti, hreint
vatn, ný lyf, stríð og aðrar hörmungar o.s.fr.
Verkefni bls. 17
Verkefnin skýra sig sjálf, en minnt er á að kennari stýri
Umræðu-hlutanum
og að
Viðfangsefnis-hlutann
er
upplagt að vinna með í hópum.
• Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara.
Mannréttindi bls. 18–21
Við hæfi er að hefja þennan kafla um mannréttindi og Þúsaldarmarkmiðin á umræðum um hvað okkur
finnst rétt og rangt í samskiptum manna á milli og ræða það út frá hinum þremur kynslóðum mann-
réttinda. Efnið hentar vel til að vinna með í siðfræði.
Hægt er að skipta Þúsaldarmarkmiðunum á milli nemenda/hópa og láta börnin vinna frekar með þau.
Nánari umfjöllun og ítarefni má nálgast á eftirfarandi vefsíðum
-
din
og
.
Fjölmargar hugmyndir að verkefnum er að finna í verkefnapakkanum á bls.
24–25.
Í umræðu og vinnu með mannréttindi og Þúsaldarmarkmiðin er gott að hafa til hliðsjónar við lesefnið
um vatn og mat á bls. 20–21.
Samfélög bls. 22–24
Það sem mótar samfélög og þjóðir að miklu leyti eru saga og menning, tungumál og trúarbrögð. Hér
má leggja áherslu á að þrátt fyrir ólíkan bakgrunn hafa allir jarðarbúar sömu vonir, væntingar og þrár.
Verkefni bls. 24–25
Verkefnapakkinn er nokkuð ítarlegur og á að vera hægt að gera mörgu góð skil. Víða er bent á vefsíður
sem gott er að hafa til hliðsjónar við úrlausn verkefna.
• Lausnir við verkefnum er að finna á læstu svæði kennara.
1...,6,7,8,9,10,11,12,13,14,15 17,18,19,20,21,22,23,24,25,26,...72
Powered by FlippingBook