Um víða veröld – Heimsálfur, kennsluleiðbeiningar - page 30

30
NÁMSGAGNASTOFNUN • 08970 Um víða veröld – Heimsálfur – Kennsluleiðbeiningar
Eyjaálfa
Eyjaálfa
• Í kaflanum er fjallað um:
Landslag og náttúrufar
Ólíkar þjóðir
Ástralíu
Frumbyggja Ástralíu
Kyrrahafseyjar
Eyjaálfukafli hefst á umfjöllun um landslag og náttúrufar álfunnar þar sem Kóralrifið mikla fær sérstaka
umfjöllun. Fjallað er um ólíkar þjóðir og einstakt dýralíf. Ástralíu eru gerð sæmileg skil auk þess sem
ítargrein er um frumbyggja álfunnar. Farið er í skiptingu Kyrrahafseyja eftir menningarlegum skyldleika
í Míkrónesíu, Melanesíu og Pólýnesíu. Að lokum er fjallað um þá umhverfisvá er steðjar að mörgum
eyjum Kyrrahafsins, hækkun á yfirborði sjávar.
Kort bls. 134
Ólíkt kortunum í álfuköflunum á undan fylgja tölfræðiupplýsingar upphafskorti Eyjaálfukafla. Á kortinu
er að finna lönd og höfuðborgir. Það má vinna á ýmsan veg með tölfræðiupplýsingarnar í töflunni fyrir
neðan. Skrá t.d. 10 fjölmennustu löndin, 10 fámennustu löndin, 10 þéttbýlustu löndin o.s.frv.
Landslag bls. 135–136
Hér er aðal áherslan lögð á eyjaklasa og eyjar í álfunni (Eyjaálfu), Kóralrifið mikla, sbr. rammagrein um
Kóralrifið mikla
bls. 136, og eyðimerkurnar í Ástralíu. Upplagt er að gera hugtakakort.
Náttúrufar bls. 136–137
Má benda nemendum sérstaklega á hvaðan nafngiftin Miðjarðarhafsloftslag er komin. Einnig má skoða
saman kortið á bls. 137 og velta fyrir sér og bera saman loftslag og gróðurfar.
Ástralía bls. 138–139
Hér er hægt að bera saman tímatal Ástralíu og Íslands (dagur/nótt, vetur/sumar). Tímamunurinn er +8
klst. í V-Ástralíu og +10 klst. í A-Ástralíu. Skoða má kaflann um
Tímabelti
bls. 49 í
Um víða veröld – Jörðin
.
Benda má nemendum á einstakt dýralíf álfunnar og mætti samþætta efnið við íslenskukennsluna í
skólanum með því að láta nemendur velja sér dýr til að skrifa ritgerð um.
Einnig má benda nemendum á hver þjóðhöfðingi Ástrala er: Breska krúnan og ræða í framhaldi ramma-
greinina um Breska samveldið hér á eftir. Þessa grein er einungis að finna í kennsluleiðbeiningum. Það
mætti láta nemendur finna þau lönd sem eru í Breska samveldinu í kortabók og lita þau á heimskort.
1...,20,21,22,23,24,25,26,27,28,29 31,32,33,34,35,36,37,38,39,40,...72
Powered by FlippingBook